Með þeim heiðri sem Kirby hlotnaðist í kvöld er streymisveitan Netflix loksins komin á kortið og orðin viðurkennd hjá bresku sjónvarpsakademíunni sem hluti af ráðandi sjónvarpsmenningu í Bretlandi og ekki lengur á jaðrinum.
Segja má að viðurkenningin hafi markað þáttaskil í sögu bandarísku streymisveitunnar því Netflix varði hundrað milljón pundum í framleiðsluna á The Crown í sinni viðleitni til að brjótast inn á breskan sjónvarpsmarkað en breska ríkisútvarpið BBC hefur löngum verið ráðandi aðili.
Kirby tileinkaði verðlaunin Margréti prinsessu. „Mér líður eins og heppnustu manneskju í heimi að fá að túlka manneskju sem er svona litrík, björt, hugrökk og sterk. Þetta er fyrir Margréti, hvar sem hún er,“ segir Kirby.

Í samtali við Telegraph segir Jane Lush, stjórnarformaður Bafta-verðlaunanna að með sigrinum og tilnefningum Netflix til handa felist viðurkenning um að tímarnir séu að breytast.
„Áhorfsvenjur fólks eru að breytast,“ segir Lush sem sem segir að verðlaunahátíðin endurspegli þessa breytingu sem hefur orðið í samfélaginu.
Dramaþáttaröð:
Sigurvegari: Peaky Blinders
Þáttaraðir sem voru tilnefndar: Line of Duty, The Crown, The End og the F***ing World.
Alþjóðlegar þáttaraðir:
Sigurvegari: The Handmaid‘s Tale
Þáttaraðir sem voru tilnefndar: Big Little Lies, Feud: Bette and Joan og The Vietnam War.
Leikari í aðalhlutverki:
Sigurvegari: Sean Bean, Broken
Tilnefndir: Jack Rowan - Born to Kill, Joe Cole – „Hang the DJ“ (Black Mirror), og Tim Bigott-Smith - King Charles III.
Aðalleikkona:
Sigurvegari: Molly Windsor, Three Girls
Tilnefndar: Claire Foy – The Crown, Sindead Keenan – Little Boy Blue og Thandie Newton – Line of Duty.
Leikari í aukahlutverki:
Sigurvegari: Brian F. O‘Byrne, Little Boy Blue
Tilnefndir: Adrian Dunbar – Line of Duty, Anupam Kher – The Boy with the Topknot og Jimmy Simpson „USS Callister“ (Black Mirror).
Leikkona í aukahlutverki:
Sigurvegari: Vanessa Kirby, The Crown
Tilnefndar: Anna Friel – Broken, Julie Hesmondhalgh – Broadchurch og Liv Hill – Three Girls.
Vanessa Kirby has won supporting actress #BAFTA2018 pic.twitter.com/26qXv4aRAi
— Upload TV (@upload_tv) May 13, 2018