Atli: Sé ekki marga markmenn verja þetta skot Henry Birgir Gunnarsson skrifar 8. maí 2018 10:30
Það vakti athygli eftir leik Stjörnunnar og KR að hetja KR í leiknum, Atli Sigurjónsson, fékk ekki að koma í viðtöl til fjölmiðla eftir leikinn. Hann átti skrautlega innkomu því fyrir utan að skora sigurmark leiksins var hann einnig rekinn af velli. „Ég var mjög peppaður. Var búinn að hita upp á fullu mjög lengi og ætlaði að keyra á það er ég kæmi inn á,“ segir Atli en hann skoraði sigurmarkið með glæsilegu langskoti. „Tilfinningin var mjög góð um leið og ég hitti boltann. Það var líka góð tilfinning að sjá hann inni. Tómas Þór Þórðarson vildi meina að hann hefði átt að verja en ég sé ekki marga markmenn verja þetta skot.“ Atli var enn hátt uppi eftir markið er hann braut fólskulega af sér og var réttilega sendur í sturtu. „Ég er ekki búinn að sjá þetta aftur en tilfinningin var sú að ég hefði bara farið upp í skallaeinvígi og svo hljóp ég bara til baka. Þá öskrar Brynjar Gauti á mig hvað ég sé að gera. Ég kíki þá til baka og sé hann liggja í jörðinni. Þá kom bara „úbbs“. Það getur vel verið að þetta sé rétt en það var enginn ásetningur í þessu hjá mér er ég hoppaði upp í boltann,“ segir KR-ingurinn en hvað með fjölmiðlabannið eftir leik? „Ég hefði nú alveg getað tæklað það en þetta er regla og ég hef ekki mikla skoðun á því. Það eru aðrir sem stýra þeim málum.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Grindavík - Njarðvík | Stórslagur á Suðurnesjunum Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Leik lokið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Enski boltinn Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira