Íþróttadeild spáir Breiðabliki 6. sæti deildarinnar en það er sama sæti og liðið hafnaði í á síðustu leiktíð. Eftir stormasamt síðasta sumar þar sem að þjálfarabreyting varð strax í byrjun móts er aftur búið að skipta um þjálfara en ró virðist yfir Kópavoginum núna og hafa úrslitin í vetur mörg hver vakið upp bjartsýni hjá þeim grænu.
Breiðablik hefur lengi verið þekkt fyrir að spila einn besta fótboltann í deildinni og skora mörk en það var ekki síður varnarleikurinn á seinni árum sem vakti mikla athygli. Liðið fékk á sig fæst mörk sumarið 2015 og endaði í öðru sæti deildarinnar og var svo með næst bestu vörnina fyrir tveimur árum. Dapran árangur Blikaliðsins á síðustu leiktíð má rekja til dapurs varnarleiks en liðið var með sjöttu bestu vörnina og endaði í sjötta sæti.
Þjálfari Breiðabliks er Ágúst Gylfason sem tók við liðinu síðasta haust. Ágúst var áður búinn að vera í átta ár hjá Fjölni og ná þar flottum árangri en hann kom Grafarvogsliðinu upp um deild, festi það í efstu deild og náði svo besta árangri Fjölnis í efstu deild fyrir tveimur árum. Ágúst hefur komið inn með mikinn ferskleika í Blikaliðið sem hefur keppst við að skora grimmt á undirbúningstímabilinu.
Svona munum við eftir Breiðabliki
Markamaskínan Hrvoje Tokic komst aldrei í gang og kristalaðist tímabilið hans og eiginlega hjá Blikaliðinu þegar að honum tókst að skjóta framhjá af markteig í mikilvægum leik á móti ÍBV. Þessi lið mætast einmitt í fyrstu umferðinni.
Liðið og leikmenn

Gunnleifur Gunnleifsson: Eftir tvö stórgóð tímabil 2015 og 2016 þar sem fyrrverandi landsliðsmarkvörðurinn virtist eilífur fór aðeins að að glytta í aldurinn á Gulla á síðustu leiktíð. Slakur varnarleikur Blikanna hjálpaði ekki til en Gulli virðist að vanda í frábæru standi og þarf að vera líkari 2015-útgáfunni af Blikunum ef þær ætla að ná markmiðum sínum sem eru efstu þrjú sætin.
Oliver Sigurjónsson: Fyrrverandi U21 árs landsliðsfyrirliðinn er kominn heim á láni en þetta gætu verið félagaskiptin sem færa Blika nær toppbaráttunni. Aftur á móti má ekki gleyma að Oliver gæti farið hvenær sem er og það gæti riðlað leik Blikanna en er svo sannarlega á meðan er. Oliver var einn besti leikmaður deildarinnar áður en að hann fór út.
Gísli Eyjólfsson: Ein af stórstjörnum síðasta tímabils. Gísli sprakk út sem einn besti miðjumaður deildarinnar en hann stýrði sóknarleik Blikanna af festu og bæði lagði upp og skoraði mörk. Nú þarf Gísli að taka næsta skref á sínum ferli og spila eins og ungur leikmaður sem ætlar sér í atvinnumennsku.
Markaðurinn

Ein óvæntustu félagaskiptin í vetur voru þegar að belgíski bakvörðurinn Jonathan Hendrickx var allt í einu kynntur til leiks en þar fer gæða leikmaður. Eftir að hafa svo misst af hverjum Blikanum á fætur öðrum fékk liðið Oliver Sigurjónsson heim sem gerir mikið fyrir Kópavogsliðið.
Þrátt fyrir að níu leikmenn séu farnir saknar Breiðablik í raun ekki nema eins en það er Martin Lund sem var hættulegasta sóknarvopn Blikanna á síðustu leiktíð.
Markaðseinkunn:B-
Hvað segir sérfræðingurinn?
„Ég held að Ágúst Gylfason komi með eitthvað ferskt inn í þetta Blikalið og létti aðeins stemninguna. Það var þungt yfir Blikunum í fyrra með Milos og Arnar Grétarsson.“
„Blikarnir eru búnir að missa Martin Lund Pedersen sem var öflugur í fyrra og hafa ekki bætt neinu við í framlínunni. Ég trúi því að Blikar bæti við leikmanni. Gísli Eyjólfsson var frábær í fyrra en fyrst og fremst þurfa Blikarnir að spila betri varnarleik,“ segir Gunnar Jarl Jónsson.
Spurt og svarað

Spurningamerkin eru ... hvort að leikmennirnir séu með hausinn rétt skrúfaðan á. Það þýðir lítið að vera í flottum gír á undirbúningstímabilinu en verða svo undir valtara þegar að tímabilið byrjar. Fær liðið nógu mikið af mörkum úr öðrum stöðum en frá framherjunum ef Sveinn Aron eða Tokic verða í sama gír og á síðustu leiktíð og er breiddin nógu mikil til að halda dampi ef liðið verður fyrir einhverjum skakkaföllum.
Binni bjartsýni og Siggi svartsýni
Við erum með bestu miðjuna í deildinni, frábæra varnarlínu hvort sem við spilum með tvo eða þrjá miðverði og svo fær Davíð Kristján aftur tækifæri í bakverðinum sem er geggjað. Arnþór Ari er búinn að skora eins og vindurinn og svo mun Gísli Eyjólfsson vera besti leikmaður deildarinnar. Þetta verður geggjað sumar í Kópavogi.
Siggi: Ég á enn þá eftir að sjá Arnþór Ara skora svona reglulega á Íslandsmóti og svo er algjör spurning hvað framherjarnir okkar gera. Mörkin sem við skoruðum á undirbúningstímabilinu komu líka flest á móti Inkasso-liðum en verr gekk þegar að við mættum Pepsi-deildarliðum. Af hverju er svo ekkert talað um brotthvarf Martins Lund? Hann var á topplistum deildarinnar yfir skoruð mörk og stoðsendingar saman.
Gulli gæti verið á síðustu metrunum í markinu og þrátt fyrir að við fengum tvo flotta leikmenn í Oliver og Hendrickx er breiddin af leikmönnum með reynslu ekki mikil. Við treystum eins og alltaf mikið á ungu leikmennina en þeir eru tæplega að fara að lyfta okkur upp í toppbaráttuna ef við lendum í of miklum skakkaföllum. Evrópusæti væri algjör draumur en ég sé frekar fram á uppbyggingar ár.