Íþróttadeild spáir ÍBV 11. sæti deildarinnar í sumar og þar með falli niður í Inkasso-deildina. ÍBV hefur verið í fallbaráttu undanfarin fjögur ár en alltaf sloppið á endanum. Liðið hefur ekki endað ofar en níunda sæti síðan 2013 þegar að það hafnaði í sjötta sæti. Ef marka má spá íþróttadeildar er komið að því hjá ÍBV eftir að hafa daðrað við fallið undanfarin ár.
Þrátt fyrir að vera í fallbaráttu allt tímabilið vann ÍBV bikarinn eftir sigur á FH í úrslitaleik á Laugardalsvelli. Eyjamenn eru því í Evrópu í ár sem gæti bæði gert tímabilið skemmtilegra í Eyjum og aukið álagið á annars mikið breytt lið. ÍBV hefur vanalega alltaf gengið vel árið eftir að verða bikarmeistari ef litið er á hlutina í sögulegu samhengi en síðast þegar að það varð bikarmeistari varð það Íslandsmeistari árið eftir.
Þjálfari ÍBV er Kristján Guðmundsson en hann er fyrsti þjálfarinn sem endist meira en heila leiktíð í Vestmannaeyjum síðan að Heimir Hallgrímsson þakkaði fyrir sig árið 2012. Kristján er að reyna að byggja upp lið í Eyjum en það hefur gengið upp og ofan enda mikið um mannabreytingar í vetur. Bikarmeistaratitill á fyrsta tímabili var þó glæsilegur árangur en Kristján er einn sá færasti í deildinni.
Svona munum við eftir ÍBV
Það er spennandi að taka þátt í Evrópukeppni og slík verkefni geta þjappað liðum saman og gefið þeim mikið. Góður árangur í Evrópu, nú eða slæmur, getur einnig haft vond áhrif á lið og mögulega má ÍBV ekkert við frekari truflun í sumar ef það ætlar að róa enn einn lífróðurinn.
Liðið og lykilmenn

Þrír sem ÍBV treystir á:
Derby Carillo: El Salvadorinn í markinu getur gert risastór mistök sem kostað mörk. Hann er svona annað hvort í ökkla eða eyra því að þegar hann er með kveikt á öllum er hann einn besti markvörður deildarinnar. Hann getur gjörsamlega lokað markinu eins og sést hefur en á undirbúningstímabilinu hefur Halldór Páll Geirsson mikið fengið að spila. Það virðist sem svo að traust Kristjáns í garð Derby sé ekkert alltof mikið en Derby er Eyjamönnum mikilvægur þegar að hann er upp á sitt besta.
Sindri Snær Magnússon: Óþreytandi baráttuhundur á miðjunni sem ber nú fyrirliðabandið og virðist sniðinn fyrir þetta lið. Þessi harðskeytti miðjumaður dúkkar líka alltaf upp með nokkur mörk á hverri leiktíð og er ákveðið afl inn á miðjunni sem drífur Eyjaliðið áfram.
Shahab Zahedi: Íraninn skoraði fjögur mörk í níu leikjum eftir að hann gekk í raðir ÍBV um mitt síðasta sumar og átti stóran þátt í því að liðið hélt sér í deildinni. Hann hefur verið öflugur á undirbúningstímabilinu en Shahab er virkilega fljótur og frábær að klára færin sín. Hann er leikmaður sem aðrir hata að spila á móti sem er bara fínt fyrir Eyjamenn.
Markaðurinn

Fimm algjörir byrjunarliðsmenn eru farnir, þar af fjórir af fimm úr fimm manna varnarlínu auk Pablo Punyed sem var erfiður biti að kyngja fyrir þá hvítklæddu. Ensku miðverðirnir tveir sem spiluðu svo vel eru farnir og aukaleikarar sem skoruðu nokkur mikilvæg mörk.
Kristján fékk á móti tvo unga og óreynda Stjörnumenn sem eiga alveg eftir að sanna sig í efstu deild og vonast svo til að fá nokkra rétta í útlendingalottóinu.
Markaðseinkunn: D
Hvað segir sérfræðingurinn?
„Væntingarnar hljóta að vera meiri núna en eins og maður sér þetta núna utan frá finnst mér vanta töluvert mikið upp á til þess að þeir nái að fara eitthvað mikið ofar en í harða botn baráttu.“
„Eyjaliðið í dag er bara fallbaráttulið í dag, því miður fyrir þá,“ segir Reynir Leósson.
Spurt og svarað

Spurningamerkin eru ... hvort Kristján viti hreinlega hvert sitt sterkasta lið er núna þegar að innan við tvær vikur eru í Íslandsmótið. Hvað gera þessir nýju erlendu leikmenn? Er hægt að treysta á útlendingalottóið enn eina ferðina og hvernig koma þessir ungu menn úr Garðabæ til leiks. Það má lítið út af bregða þannig að næstum því fall breytist hreinlega í fall, sérstaklega þar sem baráttan virðist ætla að vera meiri á botninum í ár.
Binni bjartsýni og Siggi svartsýni
Gunnar skoraði tíu mörk í deildinni í fyrra og var víst með í æfingaleik um daginn. Hann dettur óvænt inn í þetta í fyrsta leik en hann og Shahab eru eitt besta sóknarpar deildarinnar. Ég veit alveg að svona leikmannabreytingar eru ekki hollar og við verðum líklega fyrir neðan miðja deild en fallbarátta kemur ekki til greina og svo vinnum við bikarinn aftur.
Siggi: Horfðu aftur á komnir/farnir-skiltið, Binni! Þetta er náttúrlega bara vitleysa. Það er alltaf verið að tala um að halda einhverjum stöðugleika í leikmannamálum en svo þarf alltaf að leigja stærri bát en Herjólf á haustin til að ferja alla þessa malbikspilta aftur heim. Óþolandi dæmi, maður!
Varnarlínan er nánast alveg farin og það þarf því að byggja hana upp á nýtt. Þó svo að Shahab geti skorað er hann líka mikið fyrir að dýfa sér og vera leiðinlegur þannig hann gæti misst af einhverjum leikjum vegna leikbanna og svo veit maður aldrei hvenær lappirnar hreinlega detta af greyið Gunnari Heiðari. Það má ekkert út af bregða hjá okkur í sumar. EKKERT.