Hugmyndir um að fjármálastofnanir og tryggingafyrirtæki þurfi að greina frá áhættu sem tengist áhrifum loftslagsbreytinga og álagspróf vegna hraðra orkuskipta voru ræddar á fundi seðlabankastjóra um loftslagsmál í Hollandi. Seðlabankastjóri Englands varaði þar við hörmulegum afleiðingum loftslagsbreytinga.
Financial Times segir að þó að seðlabankastjórarnir hafi ekki komið sér saman um hvernig þeir eigi að bregðast við loftslagsbreytingum hafi þeir verið á einu máli um að aðlaga þyrfti regluverk fjármálastofnana að áhættum sem tengjast þeim.
Loftslagsbreytingar af völdum losunar manna á gróðurhúsalofttegundum hafa verulega áhættu í för með sér fyrir fjármálastofnanir. Gert er ráð fyrir meiri veðuröfgum í hlýnandi heimi sem gætu komið illa við pyngju tryggingafélaga. Þá fylgja orkuskiptum úr jarðefnaeldsneyti í endurnýjanlega orkugjafa einnig umbreytingar í efnahagslífinu.
„Þegar loftslagsbreytingar verða orðnar skýr og greinileg ógn við fjármálastöðugleika þá gæti það þegar verið of seint. Skylda okkar er að starfa á þann hátt að fjármálakerfið í heild sinni verði í stakk búið til að aðlagast á mjúkan, skilvirkan og skipulagan hátt eftir því sem loftslagsaðgerðir taka á sig mynd,“ sagði Mark Carney, seðlabankastjóri Englands.
Þá talaði Francois Villeroy de Galhau, seðlabankastjóri Frakklands, fyrir því að evrópskir bankar og tryggingafélög þurfi að greina frá áhættu sinni sem tengist loftslagsbreytingum, sektum við fjárfestingum í sem tengjast miklum útblæstri gróðurhúsalofttegunda og loftslagsálagsprófum fyrir allar fjármálastofnanir.
„Við þurfum framsýn álagspróf sem meta yfirgripsmikil tengsl loftslagsbreytinga annars vegar og eigna og skulda,“ segir hann.
Seðlabankastjórar vara við fjármálalegri áhættu loftslagsbreytinga

Tengdar fréttir

Segir íbúa Fídjíeyja berjast fyrir lífi sínu
Fjórir fórust í fellibylnum Josie um páskana. Forsætisráðherra Fídjíeyja segir nýtt og ógnvænlegt tímabil veðuröfga vegna loftslagsbreytinga gengið í garð.

Losun gróðurhúsalofttegunda frá orku aldrei meiri en í fyrra
Stöðnun í losun árin á undan hafði vakið vonir um að samband á milli hagvaxtar og aukinnar losunar hefði loks verið rofið.

Grænlandsjökull ekki bráðnað hraðar í fjórar aldir
Líklegt er þó að bráðnunin nú sé fordæmalaus í allt að sjö til átta þúsund ár.

Alþjóðabankinn varar við meiriháttar fólksflutningum vegna hlýnunar loftslags
Allt að 150 milljónir manna gætu flutt búferlaflutningum á þremur svæðum í þriðja heiminum vegna loftslagsbreytingum fyrir miðja öldina ef ekki verið gripið til skjótra aðgerða til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.