Lögreglumaðurinn sem fórnaði sér berst fyrir lífi sínu Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 23. mars 2018 22:45 Frá vettvangi í matvöruversluninni í dag. vísir/EPA
Franskur lögreglumaður sem bauð sjálfan sig í skiptum fyrir gísla í gíslatöku í matvöruverslun í bænum Trebes í Suður-Frakklandi í dag berst nú fyrir lífi sínu á sjúkrahúsi. Lögreglumaðurinn var skotinn af gíslatökumanninum og særðist alvarlega en þrír létust og sextán særðust, þar af tveir alvarlega, í þremur árásum mannsins að því er fram kemur í frétt Guardian. Árásarmaðurinn, Redouane Lakdim, tók gísla í matvöruversluninni en allt að fimmtíu voru þar inni þegar Lakdim kom þangað inn samkvæmt frétt Le Monde. Hann hóf skothríð og myrti einn starfsmann verslunarinnar og einn viðskiptavin. Þegar lögreglumenn gerðu tilraun til þess að rýma matvöruverslunina komust þeir að því að Lakdim hafði tekið nokkra gísla þar inni. Einn lögreglumannanna, Arnaud Beltrame, bauð þá sjálfan sig í skiptum fyrir gíslana. Árásarmaðurinn samþykkti skiptin og beið Beltrame með honum á meðan verið var að rýma verslunina. Lögreglumaðurinn var með kveikt á farsímanum sínum svo að lögreglumennirnir fyrir utan gætu heyrt það sem fram fór inni í matvöruversluninni. Þegar þeir heyrðu skotum hleypt af inni í versluninni ruddust þeir þar inn og skutu Lakdim til bana. Lögreglumennirnir komu síðan að kollega sínum alvarlega særðum en honum verið lýst sem hetju fyrir að fórna sér í þetta verkefni. Hryðjuverkasamtökin hafa lýst yfir ábyrgð á árásinni en Lakdim setti fram þá kröfu að Salah Abdeslam, sem er í haldi grunaður um aðild að hryðjuverkaárásunum í París í nóvember 2015, yrði látinn laus. Hann er í einangrun í fangelsi í Frakklandi. Innanríkisráðuneyti Frakklands hefur sagt að Lakdim hafi verið einn að verki í árásum sínum í dag.
Tengdar fréttir Gíslatökumaðurinn felldur af lögreglu Þrír eru látnir og tveir særðir eftir tvær árásir í Frakklandi. 23. mars 2018 13:46 Átta manns haldið í gíslingu í verslun í Frakklandi Sá sem tók fólkið í gíslingu sagðist vera á vegum ISIS. 23. mars 2018 11:30 Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sjá meira
Gíslatökumaðurinn felldur af lögreglu Þrír eru látnir og tveir særðir eftir tvær árásir í Frakklandi. 23. mars 2018 13:46
Átta manns haldið í gíslingu í verslun í Frakklandi Sá sem tók fólkið í gíslingu sagðist vera á vegum ISIS. 23. mars 2018 11:30