Ætlaði að myrða Youtube-stjörnur Samúel Karl Ólason skrifar 13. febrúar 2018 10:31 Youtube stjörnurnar Megan Turney og Gavin Free komust í hann krappan í síðasta mánuði þegar vopnaður aðdáandi braust inn á heimili þeirra.
Youtube stjörnurnar Megan Turney og Gavin Free komust í hann krappan í síðasta mánuði þegar vopnaður aðdáandi braust inn á heimili þeirra. Turney og Free vöknuðu á aðfaranótt 26. janúar við að maður að nafni Christopher Giles braut sér leið inn á heimili þeirra. Þau földu sig inn í fataskáp og hringdu á lögregluna á meðan Giles leitaði að þeim. Við innbrotið skaut Giles minnst einu skoti en hann fann þau þó ekki og yfirgaf heimilið. Þegar lögregluþjóna bar að garði var Giles við það að bakka úr innkeyrslu parsins og skaut hann á lögregluþjónana. Annar þeirra skaut til baka og felldi Giles. Miðað við fyrstu fregnir af atvikinu virtist sem að Giles hefði sjálfur skotið sig til bana en lögreglan segir það ekki hafa gerst.Samkvæmt frétt Albuquerque Journal hefur lögreglan lýst Giles sem „einhleypum, einmanna og trufluðum“ manni. Í dómsskjölum sem blaðamenn Journal sáu kemur fram að Giles hafi keyrt í ellefu klukkustundir til heimilis þeirra Turner og Free og ætlaði hann sér að myrða þau.Meðal annars fundu lögregluþjónar skjöl þar sem Giles hafði skrifað að hann óskaði þess að Free myndi „deyja einn og barnlaus“. „Miðað við upptökur úr öryggisvélum er ljóst að markmið Giles var að skaða þá sem bjuggu þarna,“ stóð í áðurnefndum dómsskjölum. Rannsókn stendur enn yfir og segir enn fremur í skjölunum að rannsakendur búist við því að finna sannanir um að Giles hafi ætlað sér að myrða þau bæði. Gavin Free er hvað þekktastur fyrir Youtube-rásina Slow Mo Guys. Megan Turney er þekkt fyrir svokallað cosplay og vinsæla Youtube-rás sína.Hey everyone. I just wanted to say thanks for all the support and concern regarding the recent incident. It’s been a rough time for Meg and myself the last few weeks but we are doing ok. I want to give a huge thanks to @Austin_Police for the amazing response time. you all.— Gavin Free (@GavinFree) February 13, 2018
Mest lesið Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Innlent „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Innlent Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Innlent Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Innlent Eldur logaði í Stykkishólmi Innlent Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum Innlent Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Innlent „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Innlent „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Erlent Fleiri fréttir Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Fölsk játning í formi lags Drífa segir nálgunarbann vannýtt úrræði Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Engar íranskar árásir gerðar á meðan sprengjuhlé Bandaríkjanna varir Þrír látnir eftir skothríð á matarhátíð í Seattle Netayahu sakar Mamdani um að „sá hatri“ Á fjórða hundrað þúsund hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda Sjá meira