Kalt úti – Heitt inni hjá Lexus Finnur Thorlacius skrifar 9. febrúar 2018 15:50 Lexus NX.
Þó úti sé kalt, verður hlýtt og notalegt hjá Lexus í Kauptúni, laugardaginn 10. febrúar. Þá verður vetrarsýning Lexus þar sem sjá má Lexus línuna, fólksbíla, sportbíla og sportjeppana NX og RX. Opið er hjá Lexus frá kl. 12 til 16 og boðið verður upp á ljúfar veitingar. Í reynsluakstri Lexus NX á vegum Fréttablaðsins voru þessi orð höfð um bílinn. Djörf og afgerandi hönnun bílsins hefur vakið verðskuldaða athygli enda gefa skarpar og ákveðnar línur bílnum svip sem eftir er tekið. NX er búinn 2.5 l bensínvél auk Hybridkerfis og verður fáanlegur í fjórum útfærslum, Comfort, Business, F-Sport og Luxury. Lexus NX er hlaðinn þeim þægindum sem eru aðalsmerki Lexus og hönnun bílsins er sérstaklega eftirtektarverð. Bíllinn lítur jafn vel að innan sem utan og er hlaðinn tækninýjungum, m.a. myndavélum sem sýnir allt umhverfi bílsins. Reyndist með þeim búnaði hægðarleikur að bakka milli keila sem vart var lengra á milli en breidd bílsins. Afl bílsins er með ágætum og þótt reynt væri að láta bílinn eyða miklu eldsneyti með frísklegum akstri fór eyðsla hans aldrei nema rétt upp fyrir 6 lítra á hverja hundrað kílómetra. Var það einn af mörgum kostum bílsins.
Mest lesið Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Andersen Innlent Kona réðst á pizzusendil sem vildi fá símann sinn aftur Innlent Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Erlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Borgin rukkar hestamenn og þeir hætta við reiðina Innlent Hestamenn láta tæpa hálfa milljón stöðva sig Innlent Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Innlent Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí Erlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent Alþjóðaglæpadómstóllinn lamaður vegna þvingana Bandaríkjanna Erlent