Bentley Bentayga fær V8 vél og rafmótora Ernir Eyjólfsson skrifar 10. janúar 2018 09:18 Bemtley Bentayga.
Fram að þessu hefur hinn dýri lúxusjeppi Bentley Bentayga verið í boði með W12 bensínvél sem er 600 hestöfl og 429 hestafla V8 dísilvél. Bentley ætlar hinsvegar brátt að bjóða tvo aðra vélarkosti í jeppann og ekki kemur á óvart að annar kosturinn sé í formi tengiltvinnaflrásar. Líkt og Porsche tilheyrir Bentley Volkswagen Group bílasamstæðunni og mun Bentayga líklega fá sömu tengiltvinnaflrás og finna má í Porsche Panamera E-Hybrid sem skilar 462 hestöflum til allra hjólanna. Einnig verður í boði sama V8 bensínvélin og finna má í Porsche Cayenne Turbo, en hún er 550 hestöfl og til að tryggja yfirburði W12 útgáfunnar þá mun hún skila ámóta afli í Bentayga og í Porsche jeppanum. Báðar þessar gerðir Bentayga verða ódýrari en W12 útgáfan og ekki veitir víst af þar sem þar fer afar dýr bíll. Þessi fjölgun vélarkosta ætti að tryggja aukna sölu á bílnum fríða þar sem fleiri kaupendur hafa efni á að kaupa hann. Báðir nýju vélarkostirnir ættu að verða í boði frá og með næsta sumri.
Mest lesið Kona réðst á pizzasendil sem vildi fá símann sinn aftur Innlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí Erlent Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Innlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Innlent Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Innlent „Dýrlegt veður eins langt og séð verður“ Veður Enn einn skjálftinn austan við Grímsey Innlent Loftárásir héldu áfram og segja enn harðari árásir framundan Erlent