Veganúar hefst: „Ég hélt að þetta yrði meira mál“ Hersir Aron Ólafsson og Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifa 3. janúar 2018 23:38
Fjölmargir Íslendingar ætla að sleppa allri neyslu dýraafurða fyrsta mánuð ársins. Átakið Veganúar hefur notið sívaxandi vinsælda undanfarin ár en í kvöld var kynningarfundur fyrir átakið í Bíó Paradís í kvöld. „Það eru þrír þættir sem valda því að fólk tekur þessa ákvörðun. Það er aðallega kannski dýraverndarsjónarmið sem að fær fólk til að prufa en svo náttúrulega hefur þetta góðan heilsufarslegan ávinning og það hefur margsannað sig. Svo náttúrulega er það umhverfisþátturinn en rannsóknir sýna að dýraafurðir auka gróðurhúsalofttegundir til muna í heiminum í dag,“ sagði Valgerður Árnadóttir framkvæmdastjóri Samtaka grænmetisæta á Íslandi fyrir fundinn. Hundruð manns höfðu sýnt viðburðinum áhuga á Facebook. Á fundinum var farið yfir allt það sem fólk þurfti að vita til þess að prófa vegan lífsstílinn í janúar. Valgerður segir að það þurfi ekki að taka nánast allt út úr mataræðinu sínu til að vera vegan.Leið vel á sál og líkama „Ég byrjaði sjálf fyrir tveimur árum, þegar Veganúar var haldið í fyrsta sinn á Íslandi sem var 2016 og þá ákvað ég að taka þátt í Veganúar og var einmitt svona grænmetisæta sem át fisk stundum. Ég hélt að þetta yrði meira mál en þetta var.“ Hún segist hafa verið upptekin af því fyrstu dagana að lesa aftan á öll matvæli en á þessum eina mánuði hafi hún séð hvað þetta var lítið mál. „Manni leið vel á sál og líkama.“ Veganismi er lífsháttur þar sem leitast er við að útiloka og forðast eftir fremsta megni hagnýtingu og ofbeldi gagnvart dýrum, hvort sem það á við um fæðu, fatnað, skemmtun eða aðra neyslu. Tæplega 20.000 einstaklingar eru meðlimir í hópnum Vegan Ísland sem er umræðuhópur um veganisma á Íslandi. Vegan vörur voru víða uppseldar yfir hátíðirnar og eftirspurn eftir vegan jólamat hefur aukist mikið. Samtök Grænmetisæta á Íslandi hlutu samfélagsstyrk Landsbankans í desember á síðasta ári fyrir átaksverkefnið Veganúar. Á vefsíðu átaksins má finna uppskriftir, matarplön og fleira gagnlegt tengt Veganúar en markmið átaksins er er að vekja fólk til umhugsunar um áhrif neyslu dýraafurða og kynna kosti vegan fæðis fyrir heilsu, umhverfi og dýravernd.
Vegan Tengdar fréttir Stóraukin eftirspurn eftir vegan jólamat Grænkerum og grænmetisætum fer ört fjölgandi á Íslandi og má gera ráð fyrir að í kringum 17 þúsund manns aðhyllist slíkan lífsstíl hér á landi. 18. desember 2017 08:00 Skotheld ráð til að hjálpa þér að taka þátt í Veganúar Vala Árnadóttir, framkvæmdastjóri Samtaka grænmetisæta, skorar á fólk að prófa að taka þátt í áskoruninni. Hún setti saman góð ráð fyrir áhugasama um vegan-lífsstílinn. Hún segir hvern sem er geta tekið þátt. 22. desember 2017 11:15 Vegan vörur víða uppseldar í verslunum yfir hátíðarnar Vinsælar vegan vörur eru víða uppseldar í verslunum á höfuðborgarsvæðinu yfir hátíðarnar og segir Lilja Rós Olsen, formaður Vegan samtakanna, að í ár hafi verið stóraukin eftirspurn eftir vegan jólamat. 26. desember 2017 20:00 Mest lesið Jólagjafir íslenskra vinnustaða Lífið Bestu, stærstu, slökustu og verstu myndir ársins 2024 Lífið Jólagjöf ársins er stóllinn sem getur allt nema flogið Lífið Króli trúlofaður Lífið Besta jólagjöfin að sjá bata foreldranna Lífið Dagbók móður: „Það var eins og þeir sæju eitthvað sem ég sá ekki” Áskorun Landaði hlutverki í íslensku Hallmark-myndinni á hálftíma Bíó og sjónvarp „Í stórgróða“ að eyða jólunum á Tene Lífið Guðmundur „ofpeppaðist“ og reif sig á kassann Lífið Smakkaði skötu í fyrsta sinn undir eftirliti sérfræðinga Lífið
Stóraukin eftirspurn eftir vegan jólamat Grænkerum og grænmetisætum fer ört fjölgandi á Íslandi og má gera ráð fyrir að í kringum 17 þúsund manns aðhyllist slíkan lífsstíl hér á landi. 18. desember 2017 08:00
Skotheld ráð til að hjálpa þér að taka þátt í Veganúar Vala Árnadóttir, framkvæmdastjóri Samtaka grænmetisæta, skorar á fólk að prófa að taka þátt í áskoruninni. Hún setti saman góð ráð fyrir áhugasama um vegan-lífsstílinn. Hún segir hvern sem er geta tekið þátt. 22. desember 2017 11:15
Vegan vörur víða uppseldar í verslunum yfir hátíðarnar Vinsælar vegan vörur eru víða uppseldar í verslunum á höfuðborgarsvæðinu yfir hátíðarnar og segir Lilja Rós Olsen, formaður Vegan samtakanna, að í ár hafi verið stóraukin eftirspurn eftir vegan jólamat. 26. desember 2017 20:00