Íslenska hljómsveitin Kaleo, sem hefur slegið í gegn utan landsteinanna undanfarin misseri, hyggst semja og æfa nýtt efni hér á Íslandi í janúar.
Davíð Antonsson, Dabbi, trommari Kaleo og bassaleikarinn Daníel Kristjánsson, Danni, kíktu í spjall til Ómars Úlfs á X-inu í dag. Þar ræddu þeir viðburðarríkt ár, þar sem tónleikaferðalag um heiminn bar hæst, og snertu einnig á því sem framundan er hjá sveitinni.
„Við erum að taka okkur smá tíma í að æfa og búa til nýtt efni. Við ætlum ekki að túra jafn mikið á næsta ári heldur að fara að vinna í nýrri plötu. En við munum alveg túra eitthvað,“ sagði Danni en næst stígur Kaleo á stokk í Suður-Ameríku, nánar tiltekið í Brasilíu, Argentínu og Chile á tónlistarhátíðinni Lollapalooza í mars.
Sjá einnig: Kaleo mest gúgglaðir
Þá sögðust Danni og Dabbi báðir spenntir fyrir því að semja og spila ný lög á tónleikum en sú vinna tekur við nú í janúar.
„Við verðum hér út janúar,“ sagði Danni og bætti við að upptökur færu fram á nokkrum stöðum. „Við gerum líklegast eitthvað hér heima, eitthvað í LA og eitthvað í Nashville.“
Hljómsveitin Kaleo hefur notið gríðarmikilla vinsælda síðustu ár, og þá sérstaklega í Bandaríkjunum, en sveitin var nýlega tilnefnd til Grammy-verðlauna fyrir besta rokkflutning ársins á laginu No Good. Grammy-verðlaunahátíðin fer fram þann 28. janúar næstkomandi.
Hlusta má á viðtal Ómars Úlfs við Danna og Dabba í Kaleo í heild í spilaranum hér að ofan.
![](https://www.visir.is/vaktin/content/flags/2018-10-22T153245.909Z-Manchester_City_FC_badge.svg.png)
![](https://www.visir.is/vaktin/content/flags/gracenote/4087.png)