Hann verður eðlilega framleiddur í Bandaríkjunum, enda stærsti markaðurinn fyrir þennan bíl þar. Verksmiðjan sem jeppinn verður framleiddur í er Spartanburg verksmiðju BMW í S-Karolínuríki og þar er fyrsta framleiðsla á bílnum hafin. Í fyrstu þó aðeins á þeim bílum sem fara nú í heilmiklar prófanir fram að eiginlegri markaðssetningu bílsins sem verður eftir um 12 mánuði.
Í Spartanburg eru framleiddir X5 og X6 jepparnir, auk X3 og X4 jepplinganna. Á meðfylgjandi mynd sést ekki mikið af smáatriðum hvað útlit hans varðar vegna varnarfilmanna sem umlykja bílinn, en búast má við að hann verði að mestu eins og X7 Concept bíllinn sem BMW hefur þegar sýnt.
