Þeir félagar Brynjólfur Löve Mogensen og Heiðar Logi tóku áskoruninni, bókuðu gistinguna á Airbnb og gistu í MINI tjaldinu yfir nóttina þrátt fyrir að Brynjólfur hafi átt pantað flug til Kaupmannahafnar og því þurft að vakna kl. 04:00. Nóttin var að sögn þeirra félaga erilsamari en þeir áttu von á en það kom ekki að sök því þeir eru báðir alvanir útivistarmenn sem ekki víla fyrir sér að gista í tjaldi hvar og hvenær sem er.
Þegar starfsmenn True North og BL komu morguninn eftir til að taka saman og ganga frá bíl og tjaldi var Brynjólfur floginn til Kaupamannahafnar en Heiðar Logi svaf vært í tjaldinu og lét vel af upplifuninni.
