Wenger: Erfitt fyrir alla ef Barcelona kæmi í ensku úrvalsdeildina Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. október 2017 13:30 Lionel Messi umkringdur leikmönnum Arsenal í leik í Meistaradeildinni. Vísir/Getty
Vangaveltur um framtíð Barcelona í spænsku deildinni eru háværar í erlendum fjölmiðlum í dag eftir að Josep Maria Bartomeu, forseti Barcelona, talaði um það í gær að Barcelona þyrfti möguleika að flýja spænsku deildina. Framtíð Barcelona í spænsku deildinni er vissulega í uppnámi eftir að Katalóníubúar kusu sjálfstæði frá Spáni um síðustu helgi. Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, var spurður um þann möguleika að Barcelona kæmi inn í ensku úrvalsdeildina í framtíðinni. Sky Sports segir frá. Wenger sló strax á létta strengi þegar hann fékk þessa spurningu og sagðist þá þurfa að fara að læra katalónsku en bætti svo við: „Ef Barcelona ætlar að koma inn í ensku úrvalsdeildina þá yrði þetta miklu erfiðara fyrir alla,“ sagði Arsene Wenger. „Ég held samt að þetta sé nú ekki komið svona langt. Þetta er athyglisvert mál og það er ljóst að það munu koma upp fleiri dæmi því Barcelona er mjög pólitískt félag. Það verður líka fróðlegt að sjá hvernig framhaldið verið nú hjá þeim í spænsku deildinni á þessu tímabili,“ sagði Wenger. Hann vill samt horfa frekar norður en suður þegar kemur að því að bjóða liðum inn í ensku úrvalsdeildina á næstu árum. „Við erum með nóg af liðum enda 20 í deildinni en ef við ætlum að fara upp í 24 lið þá þyrftum við nú að bjóða þeim skoska að koma inn í deildina áður en við förum í spænsku liðin,“ sagði Wenger.
Enski boltinn Spænski boltinn Mest lesið Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Fótbolti Dómarinn hlýtur mikið lof fyrir stundarbræði í garð Jake Paul og Joshua Sport Stór nöfn úr leik á HM í pílukasti Sport Gleði og sorg í sigri Liverpool Enski boltinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Enski boltinn Calvert-Lewin hættir ekki að skora Enski boltinn Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Handbolti Dagskráin í dag: Stjörnur eiga leik á HM, NFL og enski Sport Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Fleiri fréttir Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Andri Lucas skoraði í langþráðum sigri Blackburn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Ekkert fararsnið á Guardiola sem segir að City verði að vera undirbúið Tíu bestu mörkin úr leikjum Liverpool og Tottenham Salah bað samherjana afsökunar Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Alexander Isak fékk sænska gullboltann „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Amorim vill Neves Benti á hinn íslenska Dan Burn Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Forsætisráðherrann hótar Roman Abramovich og segir að „klukkan tifi“ „Sýnum kvennaíþróttir af því að þær eru frábærar“ Snéri aftur í fótbolta eftir 35 ára hlé: „Kalla mig Jackie Grealish“ Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Ungstirnið skallaði meistarana áfram Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram City sagt ætla að keppa við Liverpool og United um Semenyo Man United ósátt við Marokkó og FIFA Sápan trolluð: „Þetta er þessi klikkhaus með röddina“ Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Sjá meira