Velkominn í hópinn Ágúst Gylfason Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. september 2017 11:30 Ágúst Þór Gylfason og Rúnar Kristinsson. Vísir/Daníel
Ágúst Þór Gylfason varð í gærkvöldi fyrsti þjálfarinn í fjögur ár sem nær í öll sex stigin í boði í leikjum á móti liði Heimis Guðjónssonar. Fjölnismenn unnu þá 2-1 sigur á FH á Extra vellinum í Grafarvogi en höfðu áður unnið 2-1 sigur á FH í fyrri leiknum í Kaplakrika í maímánuði. Sigurleikir Fjölnis á FH eru athyglisverðir því fyrir þetta tímabil hafði Fjölnir aldrei náð að vinna FH í efstu deild. Þegar liðin mættu í fyrri leikinn í maí þá voru FH-ingar búnir að vinna átta deildarleiki í röð á móti Fjölni og Fjölnismenn höfðu aðeins náð í 1 stig af 30 möguleikjum í leikjum á móti FH í úrvalsdeild karla. Síðastur á undan Ágústi til að ná sex stigum á móti Heimi Guðjónssyni á einu tímabili var Rúnar Kristinsson sem gerði það tvö ár í röð með KR eða sumrin 2012 og 2013. KR vann einnig báða leikina á móti FH í fyrrasumar en undir stjórn sitthvors þjálfarans. Bjarni Guðjónsson stýrði þá KR í 1-0 sigrinum í fyrri leiknum í maí en þegar KR vann seinni leikinn í Kaplakrika í ágúst þá var Willum Þór Þórsson orðinn þjálfari Vesturbæjarliðsins. Rúnar Kristinsson og Ágúst Þór Gylfason eru núna einu þjálfararnir sem hafa tekið sex stig á móti Heimi Guðjónssyni á einu tímabili frá því að Heimir tók við FH 2008 en það gæti mögulega einn til viðbótar bæst í hópinn á sunnudaginn. Ejub Purisevic stýrði Víkingi Ólafsvík til sigurs á FH í fyrri leik liðanna í Kaplakrika en liðin mætast svo aftur í Ólafsvík um helgina. Það sem hafði ekki gerst í fjögur ár gæti því gerst tvisvar á aðeins fjórum dögum.Sex stig á móti FH í þjálfaratíð Heimis Guðjónssonar 2008-2017:Fjölnir 2017 2-1 sigur á útivelli (Ágúst Þór Gylfason, þjálfari) 2-1 sigur á útivelli (Ágúst Þór Gylfason, þjálfari)KR 2016 1-0 sigur á heimavelli (Bjarni Guðjónsson, þjálfari) 1-0 sigur á útivelli (Willum Þór Þórsson, þjálfari)KR 2013 4-2 sigur á útivelli (Rúnar Kristinsson, þjálfari) 3-1 sigur á heimavelli (Rúnar Kristinsson, þjálfari)KR 2012 2-0 sigur á heimavelli (Rúnar Kristinsson, þjálfari) 3-1 sigur á útivelli (Rúnar Kristinsson, þjálfari)
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Enski boltinn Fleiri fréttir Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Sjá meira