Sölvi segir samninginn geta þýtt það að íslenskir hipphopplistamenn eigi kost á samvinnu með listamönnum 300 útgáfunnar – en meðal þeirra sem eru undir samningi hjá fyrirtækinu eru Íslandsvinirnir Migos og Young Thug, Fetty Wap, Riff Raff og fleiri.
Alda Music var stofnað í fyrra og eru það þeir Sölvi Blöndal og Ólafur Arnalds sem eru í brúnni. Þeir gáfu til að mynda út nýjustu plötu Úlfur Úlfur, Kristalsplötu Páls Óskars og plötu með Ella Grill.

300 Entertainment
Útgáfufyrirtæki stofnað árið 2012 af Lyor Cohen, Roger Gold, Kevin Liles og Todd Moscowitz.Fyrirtækið fókusar aðallega á hipphopptónlist og eru margir af þeim stærstu í þeim bransa á samningi hjá fyrirtækinu.
Lyor Cohen, einn af forsvarsmönnum fyrirtækisins, yfirgaf það nýlega og stjórnar nú tónlistardeild YouTube.
Hann er einn af þeim allra stærstu bak við tjöldin í rappbransanum og byrjaði feril sinn hjá umboðsfyrirtækinu Rush þar sem hann landaði sveitum eins og A Tribe Called Quest, EPMD og De La Soul. Hann á einnig heiðurinn af ódauðlegu samstarfi Run-DMC og Adidas auk þess að vera einn af stofnendum Def Jam.