Róttækur vinstriflokkur næði mönnum inn á norska þingið Atli Ísleifsson skrifar 15. ágúst 2017 09:38 Norðmenn ganga til kosninga þann 10. september næstkomandi. Vísir/Getty
Róttæki vinstriflokkurinn Rødt myndi ná mönnum inn á norska þingið ef gengið yrði til kosninga í dag. Þetta er niðurstaða nýrrar skoðanakönnunar sem framkvæmd var fyrir norska TV2. Rødt fengi samkvæmt könnuninni 4,7 prósent fylgi, en þröskuldurinn til að ná mönnum inn á norska þingið er fjögur prósent. Sósíalíski vinstriflokkurinn (SV), sem er nú með sjö þingmenn, fengi ekki nægjanlegt fylgi til að ná mönnum á þing þar sem flokkurinn mælist nú með 3,6 prósent. Sömu sögu er að segja af Kristilegum demókrötum, annars stuðningsflokka ríkisstjórnar Ernu Solberg forsætisráðherra, sem mælist með 3,9 prósent. Verkamannaflokkurinn, SV og Miðflokkurinn hafa saman mælst með meirihluta í síðustu könnunum TV2 en ná ekki sameiginlegum meirihluta í nýjustu könnuninni þar sem dregur bæði úr fylgi Verkamannaflokksins og Miðflokksins. 30,3 prósent segjast myndu kjósa Verkamannaflokkinn, en 12,6 prósent Miðflokkinn. Jonas Gahr Støre, formaður Verkamannaflokksins, hefur í kosningabaráttunni ítrekað hafnað því að mynda ríkisstjórn með Rødt. Høyre, flokkur Solberg, mælist með 21,5 prósent, 0,8 prósent minna en í síðustu könnun. Fylgi Framfaraflokksins mælist 13,7 prósent og helst óbreytt frá síðustu könnun. Norðmenn ganga til kosninga þann 10. september næstkomandi.
Noregur Þingkosningar í Noregi Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Fleiri fréttir Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Sjá meira