„Þetta er þjónusta sem ég ætla að veita í samstarfi við Heimkaup. Þeir eru að verða Amazon.com Íslands og sérhæfa sig í heimsendingarþjónustu og netverslun. Þetta tilboð gildir bara fyrir þá sem panta plötuna fyrirfram. Hvort sem þú pantar á vínyl eða geisladisk, þá birtist ég við dyrastafinn heima hjá þér með plötuna, eins og Pósturinn Páll.“
Er þetta hugmynd sem þú hefur gengið lengi með í kollinum?
„Þetta er búið að blunda í mér lengi vegna þess að markaðurinn hefur breyst svo gríðarlega. Ég man þá tíð þegar sumar plötur seldust á föstu formi í 20 þúsund eintökum – ég get alveg staðfest það að þeir dagar eru liðnir. Fólk notar streymisþjónustur eins og Spotify núna – og það er hið besta mál, en aðdáendur og fólk sem er í liði með listamanninum kaupir plötur hans á föstu formi. Nú er svo komið að vínylplatan kemur sterk inn og selst meira en geisladiskurinn. Auðvitað læt ég stafrænan kóða fylgja með hverju eintaki svo þú getur spilað þetta hvar sem þú vilt.Hafandi sagt það get ég sagt að það er gjörsamlega galið að prenta stórt upplag af vínyl og geislaplötum sem sitja síðan óseldar á lager heima hjá þér. Því er mikið sniðugra að leyfa fólki að panta fyrirfram og þegar það er ljóst hversu stórt upplagið þarf að vera, hvers vegna ekki að þjónusta aðdáandann með því að bara mæta heim til hans og gera eitthvað skemmtilegt úr þessu?“

„Ég hef aldrei gefið út á vínyl. Fyrsta sólóplatan mín kom út 1993 og þá var almennt hætt að gefa út vínylplötur á Íslandi. Þessi fyrsta vínylplata mín verður algjörlega gegnsæ; glær kristals-vínylplata og plötuumslagið er prentað á plexigler.
Þetta er dansskotin poppplata svo að diskóið mun gneista af henni, bókstaflega. Úr því að fólk er tilbúið að kaupa svona vandaðar vínylútgáfur þá ákvað ég að ganga alla leið í þessari hönnun svo að hún verður bara eins og húsgagn.
Ég átti hugmyndina að þessu plötuumslagi, en Ólöf Erla hjá Ólöf Erla Design útfærði hana fyrir mig. Umslagið verður allt handunnið hér á Íslandi, en platan pressuð erlendis. Það tekur átta vikur að pressa vínylplötur, þannig að ég verð að loka fyrir pantanir á Heimkaup 14. júlí. Það er hægt að panta núna.“