Víst er að Fiat Tipo á sér margan verðugan keppinautinn í þessum stærðarflokki og þá myndast eðlilega spurningin á hvern hátt getur Fiat skákað samkeppninni með Tipo. Því er helst að svara með góðu verði en hann býðst frá 2.790.000 krónum. Volkswagen Golf fæst frá 3.090.000 kr., Ford Focus frá 2.990.000 kr. og Opel Astra frá 2.890.000 kr. Fiat Tipo er því þeirra ódýrastur, en er það nóg í samkeppninni við hina vinsælu bílana?

Stallbakur, langbakur og með skotti
Fiat Tipo er af fyrstu kynslóð og kom fyrst á markað árið 2015. Hann fæst sem stallbakur, langbakur og í sedan-útfærslu með skotti. Velja má á milli 1,4 og 1,6 lítra bensínvéla, 95 og 120 hestafla og 1,6 dísilvél, 120 hestafla. Engin þessara véla er sérlega öflug, en þær duga þó allar bílnum vel og alls ekki er hægt að kvarta yfir aflskorti. Þó hefði verið gaman að eiga kost á því að velja bílinn með aflmikilli vél þó svo hann yrði þá nokkru dýrari.

Þegar inn í bílinn er komið verður heldur enginn fyrir vonbrigðum, en efnisvalið er þó í takti við það lága verð sem bíllinn býðst á. Plássið inní bílnum er yfrið og kemur á óvart og ekki vafðist það fyrir greinarritara að sitja í aftursætinu, en þar var nægt fóta- og höfuðrými. Sama verður að segja um skottrýmið, sem er 440 lítrar og skákar Tipo þar við mörgum keppinautnum.
Furðu góðir aksturseiginleikar
Þegar kemur að akstri Fiat Tipo kemur á óvart hvað bíllinn er lipur og fjaðrar skemmtilega. Hann er frekar næmur í stýri, ekki of léttur né þungur og gefur tilfinningu fyrir undirlaginu. Aldrei gætti undirstýringar og hann tekur beygjurnar frísklega ef hann er beðinn um það. Hann skákar nokkrum af keppinautum sínum í stærðarflokknum þar þó svo einnig megi finna skemmtilegri akstursbíla þar. Hann skákar til dæmis Nissan Pulsar og Hyundai i30 en er eftirbátur Ford Focus og Volkswagen Golf. Alls ekki slæmt fyrir svo ódýran bíl.

Mikill staðalbúnaður og alvöru varadekk
Í reynsluakstrinum voru reyndar tvær mismunandi útfærslur Tipo, sjálfskiptur bíll með dísilvélinni og beinskiptur bíll með 1,6 lítra bensínvélinni. Báðir líkuðu þeir vel en í þessum stærðarflokki bíla er skoðun greinarritara að beinskipting henti betur og átti það við í tilfelli Tipo. Báðar vélarnar voru nægjanlega aflmiklar, en skorti helst afl í millihröðun og skiluðu ekki miklu afli á háum snúningi. Það verður alls ekki kvartað yfir staðalbúnaði í Tipo.

Fiat Tipo er afar kærkomin viðbót í C-stærðarflokkinn og er þeirra allra ódýrastur þó svo það megi ekki sjá né finna við prufu á bílnum. Tipo er allrar athygli verður sem glænýr kostur í flóruna og með honum má einnig gleðjast yfir endurkomu Fiat í sölu á Íslandi.
Kostir: Útlit, aksturseiginleikar, rými, verð
Ókostir: Efnisval í innréttingu, engin kraftavél
1,6 lítra bensínvél, 120 hestöfl
Framhjóladrif
Eyðsla frá: 6,3 l./100 km í bl. akstri
Mengun: 98 g/km CO2
Hröðun: 9,8 sek.
Hámarkshraði: 200 km/klst
Verð frá: 2.790.000 kr.
Umboð: Ísband