Nú er tíminn fyrir smáflugurnar í laxveiðinni Karl Lúðvíksson skrifar 10. júlí 2017 09:00 Monroe Killer hict túpa
Það er stór hluti af laxveiði að velja þá flugu sem á að fara undir og satt best að segja standa veiðimenn oft fyrir erfuðu vali þegar boxin eru opnuð. Í dag er stórstraumsflóð og síðustu dagar hafa skilað ágætum göngum í árnar á vesturlandi samkvæmt okkar heimildum og þá virðast Norðurá, Þverá/Kjarrá og Langá vera að fá mun meiri göngur en margar af ánum. Það liggur svo sem engin skýring á því hvers vegna það er en þess má vænta að hinar árnar í þessum landshluta taki vonandi kipp fljótlega. Árnar eru þess vegna að fyllast af eins árs laxi sem er oft mistökuglaður og það þarf þess vegna að velja vel það sem fyrir hann er borið. Það sem er að skila langbesta árangrinum í ánum á vesturlandi þessa dagana eru litlar flugur og þá erum við að tala um flugur í stærðunum 14-18#. Gáurbragðið eða "hitch" er einnig feyknasterkt í nýgengin lax og sérstaklega skemmtileg veiðiaðferð. Flugurnar sem eru að venju gjöfular eru t.d. Rauð Frances, Svört Frances, Black and Blue, Collie Dog, Green Butt, Haugur, Flúð, Hairy Mary, Monroe Killer og svo auðvitað Sunray Shadow en litlar útgáfur af henni eru að verða mjög vinsælar og flugur verða það sjaldnast nema þær séu að skila laxi á land. Sú aðferð sem er hægt að mæla með er að nota langa tauma, litlar flugur og láta reka. Í hægara vatni má strippa flugurnar inn og það er um að gera að prófa nokkra takta og hraða til að sjá hvað hreyfir við laxinum. Það verður spennandi að sjá hvernig göngurnar verða næstu daga í laxveiðiárnar en þessi straumur gefur oft gott merki um það hvernig sumarið á eftir að fara og hvernig veiðivonin verður út tímabilið.
Mest lesið RISE fluguveiði- hátíðin fer fram 14. apríl Veiði Ein af vinsælustu flugum sumarsins Veiði Langá opnaði í morgun með tveimur löxum Veiði Svipaður fjöldi umsókna og 2011 Veiði Fleiri fréttir af opnunum laxveiðiánna Veiði Laxinn dreifir sér vel í Korpu Veiði 59 laxar úr Eystri Rangá í gær Veiði Innsend frétt úr Korpunni Veiði Fínasta veiði á Kárastöðum Veiði Melta söluskrána með hangikjötinu Veiði