Innrásin úr Inkasso-deildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. júní 2017 06:00 KA-mennirnir Hallgrímur Mar Steingrímsson og Emil Sigvardsen Lyng fyrir ofan. vísir/stefán
Bilið á milli Pepsi-deildarinnar og Inkasso-deildarinnar er eflaust minna en margur heldur. Það eru nýliðar Pepsi-deildarinnar að minnsta kosti að sýna og sanna í fyrstu fimm umferðum sumarsins. Átján stig og nítján mörk í fimm leikjum er frábært veganesti fyrir framhaldið hjá liðunum sem stóðu sig langbest í Inkasso-deildinni í fyrra og hafa síðan fylgt því eftir með góðri byrjun í úrvalsdeildinni.Búist við miklu af KA Það var vissulega búist við meiru af KA-mönnum en af mörgum nýliðum Pepsi-deildarinnar á síðustu árum enda hefur Akureyrarliðið verið duglegt að safna að sér leikmönnum í Pepsi-deildar klassa á síðustu árum. Frábær frammistaða Grindvíkinga hefur aftur á móti komið mun fleirum á óvart. Nýliðunum hefur báðum tekist að gera betur en stórlið KR og FH og sitja þau nú bæði meðal fjögurra efstu liða Pepsi-deildarinnar. Topplið Stjörnunnar þurfti jöfnunarmark á lokamínútum til að ná stigi á móti Grindavík og skoraði síðan sigurmark á sjöttu mínútu í uppbótartíma á móti KA. Valsmenn, sem eru í öðru sætinu, töpuðu fyrsta leik sumarsins á móti Grindavík en eiga eftir að mæta KA.Glötuð stig í uppbótartíma KA-menn gætu verið með fleiri stig og gráta eflaust þessi þrjú stig sem þeir misstu í uppbótartíma í tapinu á móti Stjörnunni og jafnteflinu á móti Víkingi R. Grindvíkingar geta aftur á móti þakkað Bolvíkingnum Andra Rúnari Bjarnasyni fyrir sigurleikina þrjá enda var hann með sigurmarkið á móti Víkingi R. og Val og þrennu í sigrinum upp á Skaga. Nýliðar eru ekki oft í kringum toppinn þegar um fjórðungur Íslandsmótsins er að baki. Það að báðir nýliðarnir séu inni á topp fjögur verður enn merkilegra þegar litið er á það að aðeins samtals fimm nýliðar af nítján frá 2008 til 2016 voru meðal fjögurra efstu. Það þarf síðan að fara 25 ár aftur í tímann til að finna tvo nýliða meðal fjögurra efstu liðanna eftir fimm umferðir.Sumarið 1992 seint jafnað Sumarið 1992 verður líklega seint toppað hvað varðar innkomu nýliða í efstu deild karla. Þetta sumar komu lið ÍA og Þór Akureyri upp í deildina og slógu bæði í gegn það sumar. ÍA varð fyrsta og eina liðið sem nær að verða Íslandsmeistari á fyrsta ári og Þórsarar náðu þriðja sætinu. Það hefur gengið ágætlega hjá Inkasso-liðunum síðustu ár en fjórir af síðustu sex nýliðum eru enn að spila í Pepsi-deildinni (Fjölnir, Víkingur R., ÍA og Víkingur Ó.). Á árunum 2010 til 2013 náðu hins vegar aðeins tveir af átta nýliðum að halda sér uppi. Eftir að fjölgað var í deildinni sumarið 2008 mátti alltaf búast við að bilið á milli deildanna myndi aukast en nú bendir allt til þess að innrásarliðin úr Inkasso komi nú upp betur vopnum búin en áður. Það er hins vegar tiltölulega lítið búið af mótinu og því geta bæði lið enn opinberað frekar veikleika sína eða hin lært betur á þau. Eins og er líta þau hins vegar út eins og lið sem eru fær í flestan sjó í Pepsi-deildinni.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Íslenski boltinn Snævar setti heimsmet Sport Færðu auglýsingaskiltin til að trufla löng innköst Arsenal Enski boltinn „Er ekki alveg viss um hvar hann hefur lært körfubolta“ Körfubolti Í beinni: Man. City - Liverpool | Risaleikur á Etihad Enski boltinn Sjáðu Messi skjóta Inter Miami áfram í fyrsta sinn Fótbolti Maddie Sutton í sögubækurnar í fámennum hóp Körfubolti Sjáðu alla dramatíkina og mörkin í enska í gær Enski boltinn Dagskráin í dag: Stórleikur í enska og NFL á fullt Sport Hvetur Napólí til að sækja óánægðan Mainoo Fótbolti Fleiri fréttir Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Sjá meira