Nýr og breyttur GLA frumsýndur Finnur Thorlacius skrifar 9. júní 2017 09:20 Nýr Mercedes Benz GLA sem frumsýndur verður um helgina.
Nýr og breyttur Mercedes-Benz GLA verður frumsýndur hjá bílaumboðinu Öskju nk. laugardag kl. 12-16. Í nýjum GLA helst í hendur fallegt og kraftalegt útlit, mikil afkastageta og lipurð í meðhöndlun. Kraftalegt yfirbragðið kemur meðal annars af framstuðara með nýju útliti og vatnskassahlíf með götuðum rimum. GLA fæst nú með fallega hönnuðum LED aðalljósum. Að innan státar GLA af hágæða efnum og vönduðum frágangi eins og Mercedes-Benz er þekkt fyrir. Innanrými GLA býður upp á sportlegt yfirbragð og þægilegt akstursumhverfi. GLA er vel búinn nýjasta aksturs- og öryggisbúnaði frá Mercedes-Benz, m.a. hinu háþróaða 4MATIC fjórhjóladrifi. Þá er einnig staðalbúnaður í bílnum ATTENTION ASSIST kerfið, sem aðstoðar ökumann að halda einbeitingu þegar á þarf að halda. GLA er einnig fáanlegur með úrvali akstursstoðkerfa, svo sem athyglisvara, blindblettsvara, Blind Spot Assist, sem stuðlar að auknu öryggi við akreinaskipti. Bílastæðavarinn, Parking Pilot, er ekki síður nytsamlegur valbúnaður. Margvíslegur tæknibúnaður er í boði í GLA, svo sem lykillaus ræsing og bakkmyndavél með 360° yfirsýn fyrir aukið öryggi. Meðal valbúnaðar má nefna Garmin® MAP PILOT leiðsögukerfi. Meðal aflmikilla og sparneytinna útfærslna er GLA 250 4MATIC sem býr yfir hröðun úr kyrrstöðu í 100 km hraða á klst á einungis 6,6 sekúndum. GLA eyðir frá 4,8 lítrum á hundraðið með 4MATIC fjórhjóladrifinu. Val er um fjölda útfærslna sem draga enn frekar fram alhliða eiginleika bílsins. Þar á meðal er GLA AMG Line, með 19" AMG álfelgum og áberandi AMG útlitsatriðum á yfirbyggingu, og GLA WhiteArt Edition með svörtum, hágljáandi listum og áþrykktum röndum á vélarhlíf og á þaki í keppnisstíl.
Mest lesið Dæmdur fyrir brot gegn fimmtán börnum í viðbót Innlent Vó að æru Margeirs með því að færa hann til í starfi Innlent „Nú er verkstjórn tekin við sem gengur í málið“ Innlent Óvíst hvar börnin lenda í haust Innlent Láta heiladauða konu ganga áfram með fóstur vegna þungunarrofsbanns Erlent Keilusambandið sakað um djúpstæða spillingu Innlent Sakaður um að kalla eftir dauða Trumps með mynd af skeljum Erlent Óásættanlegar kröfur frá Rússum á stuttum fundi Erlent Tugmilljóna gjaldþrot meðhöndlarans Innlent Diplómatinn sem grunaður var um njósnir er látinn Erlent