Octavia og Kodiaq frumsýndir Finnur Thorlacius skrifar 16. maí 2017 09:16 Skoda Kodiaq.
Skoda dagurinn verður haldinn hátíðlegur laugardaginn 20. maí milli kl. 12 og 16 í höfuðstöðvum Skoda við Laugaveg 170 – 174 þar sem boðið verður upp á grillaðar pylsur, svaladrykki og andlitsmálningu. Að auki verður Skoda deginum fagnað á Bílasölu Selfoss, Höldi Akureyri og HEKLU Reykjanesbæ. Á öllum stöðum verður margt um að vera og helst ber að nefna frumsýningar á nýrri og uppfærðri Skoda Octaviu ásamt sportjeppanum Skoda Kodiaq. Vinsæla fjölskyldubílinn Skoda Octavia þarf vart að kynna en hann er einn mest seldi bíll á Ísland. Nýi bíllinn hefur fengið andlitslyftingu og er mikið uppfærður. Hönnunin er enn fágaðri og framsæknari en áður og ný LED dag- og afturljós skína skært. Ný Octavia er einstaklega rúmgóð með allt að 610 lítra farangursrými sem hægt er að stækka í 1.740 l. Octavia kemur með ótal nýjum tæknimöguleikum eins og nýju upplýsinga- og afþreyingarkerfi með allt að 9,2 tommu skjá og þráðlausri snjallsímahleðslu. Meðal staðalbúnaðar í nýju útgáfunni er leðurklætt aðgerðastýri, LED afturljós og bakkmyndavél. Úrval aukabúnaðar er í boði á borð við tengivagnsaðstoð, fjarlægðatengdan hraðastilli og blindsvæðagreini. Þrjár gerðir véla eru fáanlegar; 1.4 lítra metan- og bensínvél og 1.6 og 2.0 lítra dísilvélar. Skoda Kodiaq er fyrsti jeppi framleiðandans í fullri stærð og hefur slegið í gegn um allan heim. Hann er fjölnota jeppi sem þykir státa af kraftmikilli hönnun og hann hefur einnig hlotið mikið lof fyrir tengibúnað og nýsköpun í tæknilausnum. Kodiaq er í boði fimm og sjö manna, hann 4,75 metrar á lengd og með stærsta farangursrýmið í sínum flokki. Í boði eru bæði 1.4 lítra bensínvélar og 2.0 lítra dísilvélar. „Við erum mjög stolt að frumsýna þessa flottu bíla. Octavia er einn söluhæsti bíllinn á Íslandi og eftir uppfærsluna verður hann eflaust enn vinsælli. Kodiaq jeppinn er nýjasta útspilið frá Skoda og gefur forsmekkinn af því sem koma skal en Skoda hyggst auka úrvalið á sportjeppamarkaði til muna á næstu misserum. Það er mikil eftirspurn eftir Kodiaq og um 100 manns hafa forpantað hann svo það er gaman að geta frumsýnt hann. Að auki verðum við að sjálfsögðu með Superb, Fabiu og Yeti til sýnis, pylsur á grillinu og andlitsmálningu fyrir yngstu kynslóðina,“ segir Gestur Benediktsson sölustjóri Skoda.Skoda Octavia.
Mest lesið Vó að æru Margeirs með því að færa hann til í starfi Innlent Óvíst hvar börnin lenda í haust Innlent „Þetta er framar okkar björtustu vonum“ Innlent Láta heiladauða konu ganga áfram með fóstur vegna þungunarrofsbanns Erlent Kölluð út vegna slagsmála og svo aftur vegna berserksgangs sama manns Innlent Villta vestrið ríki á íþróttaviðburðum og kalla eftir reglum Innlent Ökumenn séu oft með óþarfa munnsöfnuð og fingurinn á lofti Innlent Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Andersen Innlent Þrír grunaðir í tengslum við brunann á Stuðlum Innlent Ekkert lát á sumarveðrinu Veður