Í þættinum Í eldhúsi Evu, sem er á dagskrá Stöðvar 2 á fimmtudögum, töfra ég fram dýrindis kræsingar. Hér er uppskrift að guðdómlegu Sushi með djúpsteiktum humar og bragðmikilli chilisósu.
Sushi með djúpsteiktum humar og bragðmikilli chilisósu
600 g skelflettur humar
Tempura-deig
Ferskur aspas, soðinn í söltu vatni í 3 mínútur
Agúrka, skorin í þunnar og langar sneiðar
Rauð paprika, skorin þunnar og langar sneiðar
Lárpera
Ferskur kóríander
Chili-majónes
Pikklað engifer
Wasabi-mauk
Sojasósa
Nori-blöð
Sushi-hrísgrjón
350 g sushi-hrísgrjón
7 ½ dl vatn
Salt
Hrísgrjónaedik
1 tsk. sykur
Skolið hrísgrjónin mjög vel, mér finnst best að skola þau í góðu sigti. Það tekur svolitla stund eða um 5 – 7 mínútur. Leggið hrísgrjónin í bleyti í köldu vatni í um það bil tvær klukkustundir, skiptið um vatn 2 – 3 sinnum.
Setjið hrísgrjónin út í kalt vatn í þykkbotna pott og látið suðuna koma upp. Lækkið hitann þannig að rétt malli og sjóðið í 20 mínútur við lægsta suðuhita.
Takið pottinn af hitanum og hafið lok á. Látið standa í 15mínútur áður en hrísgrjónin eru notuð til sushi-gerðar.
Setjið hrísgrjónin í pappírsklædda ofnplötu og hellið ediksblöndu yfir (blandið saman hrísgrjónaediki og sykri).
Blandið vel saman og leyfið grjónunum að kólna alveg áður en þið notið þau.
Humar tempura
130 g hveiti
½ tsk. lyftiduft
200 ml sódavatn
Salt og pipar, um ½ tsk. samtals af hvoru
Djúpsteikingarolía
Blandið öllum hráefnum saman í skál og hitið olíu í potti (um 500 ml af olíu). Þerrið humarinn afar vel svo það fari ekki umfram vökvi í deigið, dýfið humrinum varlega ofan í deigið og svo beint í olíuna. Djúpsteikið humarinn í nokkrar mínútur eða þar til hann er orðinn gullinbrúnn. Setjið humarinn beint á eldhúspappír þegar hann er tilbúinn.
Chili majónes
200 g japanskt majónes
2 – 3 msk. siracha-sósa
Salt og pipar
Skvetta af límónusafa
Setjið öll hráefni í skál og hrærið vel saman þar til sósan er silkimjúk.
Samsetning: Dreifið hrísgrjónum yfir nori-blað og snúið strax við, setjið agúrku, aspas, humar, papriku og smávegis af kóríander ofan á nori blaðið og rúllið upp, varlega. Þegar þið hafið náð að mynda góða rúllu þá skerið þið lárperu afar þunnt sem þið skreytið rúlluna með ásamt því að dreifa vel af chili-majónesinu yfir. Njótið strax!