Ivanka Trump gefur út sjálfshjálparbók handa konum Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 2. maí 2017 22:20 Ivanka Trump, er dóttir Donald Trump en líka opinber starfsmaður og því hafa vaknað upp spurningar um bókaútgáfuna. Vísir/Getty
Ivanka Trump, dóttir og sérlegur ráðgjafi Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, gaf í dag út sjálfshjálparbók handa vinnandi konum. Bókin hefur verið harðlega gagnrýnd og hafa vaknað uppi spurningar um aðstöðu Trump. AFP greinir frá. Bókin, sem ber heitið „Women Who Work: Rewriting the Rules for Success,“ er ætlað að vera konum á vinnumarkaðnum innblástur og uppspretta ráða um hvernig skal koma sér á framfæri innan fyrirtækja. Markmiðið sé að gera kerfið betra fyrir konur. Við útgáfu bókarinnar vakna enn og aftur upp spurningar um þá aðstöðu sem Trump er í og hvort hún sé að nýta sér opinbera stöðu sína í Hvíta húsinu, til þess að þéna tekjur. Hún segir að hún hafi unnið bókina áður en faðir hennar varð forseti og hún tók við opinberri stöðu sem ráðgjafi hans. Bókin hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir að endurspegla á engan hátt raunverulegar aðstæður kvenna á vinnumarkaðnum, þar sem Trump gefi ráð, sem meirihluti kvenna geti á engan hátt nýtt sér. Þannig segir Trump til að mynda frá því hvernig hún eyði tíma sínum um helgar, á heimili þeirra í New Jersey og þá gefur hún ráðleggingar um það hvaða heilsulindir eru bestar fyrir börn.
Mest lesið Fjöldi ásakana um brot gegn barnungum stúlkum Erlent „Mjög áhugaverð umræða“ Innlent Þúsundir kvartana vegna leigubílaaksturs en fagnar breytingum Innlent Nýbirt skjöl varpa ljósi á dánarstund Epstein Erlent Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Innlent Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Innlent Jói Fel málar með puttunum Innlent Vísar því á bug að HSÍ fái ekkert fyrir sinn snúð Innlent Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Erlent Segir um að ræða alvarlega aðför að sjálfstæði forseta Íslands Innlent Fleiri fréttir Fjöldi ásakana um brot gegn barnungum stúlkum Nýbirt skjöl varpa ljósi á dánarstund Epstein Ákæru fyrir manndráp vísað frá Trump útnefnir Warsh sem næsta seðlabankastjóra Tíu ákærðir fyrir að drepa friðaða úlfa Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Trump segir Pútín hafa samþykkt hlé á árásum á Kænugarð Njósnastjóri Trumps leitar að kosningasvindli Reyndi að frelsa Mangione vopnaður pítsaskera Saksóknarar hóta uppreisn í Minneapolis „Hættulegasti maður Noregs“ fannst látinn í fangaklefa Segir Venesúela munu þurfa að sækja um úthlutun úr eigin olíusjóði í Katar Ellefu meðlimir glæpafjölskyldu teknir af lífi í Kína Fundu fjarlægustu vetrarbrautina hingað til Segir útsendara „mögulega“ ekki hafa fylgt verkreglum Segir Trump ekki reiðan Íslandi Dómsdagsklukkan færð fram Sendir herskipaflota að Íran og hótar „ofbeldi“ Helsta klappstýran sögð slegin yfir sálarástandi Trumps Verða ekki viðstödd réttarhöld stjúpsonarins Vilja veita þúsundum sem dvelja ólölega á Spáni dvalarleyfi Ná saman um myndun minnihlutastjórnar í Hollandi Maður sprautaði illa lyktandi vökva á Ilhan Omar Róa á nýnasistamið í leit að ICE-liðum Dómari stöðvar brottflutning Liam og föður hans Bandaríkin hyggja á heræfingar í Mið-Austurlöndum Svíar líta til kjarnorkuvopna Tónninn breytist með yfirmannaskiptum hjá ICE Tala fallinna og særðra nálgast tvær milljónir Sjá meira