Straumlínulagaðar línur og kraftaleg umgjörð gefa bílnum fallegt heildaryfirbragð. Aksturseiginleikarnir eru sportlegir og skemmtilegir. Nýi bíllinn er vel búinn snjöllum tækninýjungum. Meðal staðalbúnaðar í bílnum má nefna Bluetooth, bakkmyndavél og bakkskynjara, hita í stýri og sætum og 5 tommu litaskjá í mælaborði.
Nýr Kia Rio er einn sparneytnasti bíll í heimi og eyðir aðeins frá 3,8 lítrum á hundraðið. Bíllinn er í boði með hinu nýja og háþróaða akstursstoðkerfi Kia Drive Wise sem gerir aksturinn öruggari og ánægjulegri. Þá er bíllinn í boði með akreinavara og sjálfvirkri neyðarhemlun ásamt ýmsum öðrum búnaði.
Ný kynslóð Kia Picanto er ríkulega búin staðalbúnaði og setur öryggið í fyrsta sætið. Picanto er fallega hannaður og með sportlegri ásýnd en forverinn. Snjöll hönnun hans og lítil fyrirferð gerir hann fullkominn í borgarumferðinni. Nýr Picanto er lipur og þægilegur í akstri og rúmbetri að innan en áður og státar af stærsta skotti í sínum stærðarflokki eða 250 lítrum.
Meðal staðalbúnaðar má nefna Bluetooth, hita í stýri og sætum, álfelgum og loftkælingu. Eyðslan í Picanto er frá 4,2 lítrum á hundraðið. ,,Við erum mjög spennt að frumsýna þessa tvo nýju og glæsilegu bíla sem hafa verið mjög vinsælir hér á landi sem og annars staðar í heiminum.
Rio og Picanto eru nettir en stórskemmtilegir bílar sem hafa unnið hug og hjörtu eigenda sinna og ég er ekki í vafa um að nýju kynslóðirnar munu halda vinsældum þeirra áfram á lofti," segir Þorgeir Pálsson, sölustjóri Kia hjá Bílaumboðinu Öskju. Kia Rio og Kia Picanto eru báðir með 7 ára ábyrgð Kia sem er lengsta ábyrgð sem bílaframleiðandi býður upp á í heiminum. Bílarnir verða einnig sýndir hjá umboðsmönnum um allt land á laugardaginn.
