Uppselt á Króatíuleikinn 5. maí 2017 14:10 Strákarnir okkar fyrir leikinn í Laugardalnum í nóvember 2013. Vísir/Daníel
Allir fjögur þúsund miðarnir sem í boði voru til kaupa á landsleik Íslands og Króatíu þann 13. júní í undankeppni HM 2018 í Rússlandi seldust upp í dag. Ljóst er að færri komast að en vilja.Miðasala hófst klukkan 12 á Midi.is og var með því fyrirkomulagi að fólk skráði sig í röð og beið svo eftir því að röðin kom að þeim. Hver mátti kaupa að hámarki fjóra miða og hafði fimm mínútur til að athafna sig, velja sér sæti og þar fram eftir götunum. Laugardalsvöllur tekur tæplega tíu þúsund manns í sæti. Áður en keppni hófst í undankeppninni setti KSÍ á sölu miða sem giltu á alla heimaleiki Íslands. Um tvö þúsund miðar seldust. Þá eiga Króatar rétt á tíu prósent miðanna, tveimur hólfum í norðurenda austurstúkunnar, tæplega eitt þúsund miðum. Eftir standa tæplega þrjú þúsund miðar sem fara til samstarfsaðila KSÍ. Þetta verður í fjórða skiptið á fjórum árum sem þjóðirnar mætast á knattspyrnuvellinum. Markalaust jafntefli varð í Laugardalnum í nóvember 2013 en Króatar hafa unnið báða leikina í Zagreb 2-0. Króatar eru í efsta sæti I-riðils með 13 stig en Ísland í öðru sæti með 10 stig. Með sigri komast því Íslendingar upp að hlið Króata í toppsæti riðilsins.
HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Njarðvík sagði upp samningi við Smit Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Freyr að eignast markakóng eftir enn einn sigurinn Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Góður sigur stráka Sigga Ragga í lokaleiknum Gylfi tekur við Víkingi Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Sjá meira