Á mánudaginn var héldu þeir frumsýningarpartí og komu gestum á óvart með þessum fjölda myndbanda – og kórónuðu svo veisluna með að tilkynna um nýja plötu.
„Myndböndin eru öllu unnin með uppáhaldsleikstjóranum okkar, Magnúsi Leifssyni, sem gerði bæði Tarantúlur og Brennum allt með okkur. Heildarkonseptið er einhver árekstur eða samsuða á milli framtíðar og fortíðar. Við erum allir sci-fi-perrar og við gerð myndbandanna fengum við prýðilega útrás fyrir það, sérstaklega í Geimvera.“

„Nýja platan, Hefnið okkar, kemur út á föstudaginn. Tvær plánetur sem kom út 2015 var samansafn af lögum sem urðu til á þremur árum en Hefnið okkar varð öll til á örfáum mánuðum síðastliðið haust. Ég held að fólk muni finna fyrir þessum mun.
Sándlega séð erum við á miklu betri stað en áður. Við höfum afmarkað okkar persónulega hljóm mjög vel. Hefnið okkar hljómar eins og við höfum alltaf látið okkur dreyma um að hljóma en hvorki haft getuna né reynsluna til að framkvæma – fyrr en núna. Það hefur alltaf verið nóg af myrkri í tónlistinni okkar og það er enn þá nóg af því en að mínu mati er jafnframt meiri húmor í gangi en áður. Myrkur og grín – það erum við.“


„Við spiluðum fyrst í Varsjá síðastliðið haust, þá í boði pólsks teymis sem hafði séð okkur á Airwaves. Við fórum út með engar væntingar en snerum heim harðákveðnir í því að kýla á þetta, sá fræjum um alla Evrópu og vinna nánar með pólskum samstarfsaðilum. Síðastliðinn mánuð höfum við spilað á festivölum í Eistlandi og Póllandi og í maí förum við á festival í Rotterdam.
Núna erum við bara að fara vandlega yfir tilboð sem okkur hafa borist og reyna að setja saman veglegan túr í haust um Evrópu. Nú þegar er búið að staðfesta okkur í Rússlandi, Ungverjalandi, Slóveníu og Þýskalandi. Ég hlæ bara við tilhugsunina því í hreinskilni sagt þá skiljum við eiginlega ekkert af hverju þetta er að virka. En fyrst þetta gerir það þá kemur ekki annað til greina en að láta bara vaða. Ég er ringlaður og spenntur á sama tíma og dýrka það.“
Nýju myndböndin má öll finna á glænýrri heimasíðu þeirra úlfa - ulfurulfur.is