Mitsubishi Outlander PHEV mest seldi tengiltvinnbíllinn Finnur Thorlacius skrifar 10. mars 2017 11:24 Mitsubishi Outlander PHEV.
Mitsubishi Outlander PHEV er mest seldi tengiltvinnbíllinn á Íslandi samkvæmt opinberum tölum og á það bæði við um heildarsölu ársins 2016 og fyrstu tvo mánuði ársins 2017. Tengiltvinnbíll er bifreið sem er bæði með hefðbundna vél og gengur jafnframt fyrir rafmagni, en slíkir bílar verða æ vinsælli þegar bifreiðaeigendur huga að vistvænni lífsmáta. PHEV hefur svo sannarlega slegið í gegn eins og sölutölur sýna og þakkar HEKLA viðskiptavinum sínum fyrir góðar móttökur. Mitsubishi, sem fagnar 100 ára afmæli á þess ári, fær því góða byrjun á afmælisárinu, en ekki bara hvað varðar metsölu á Mitsubishi Outlander PHEV. Salan á Mitsubishi bílum hefur nefnilega tvöfaldast milli ára í magni og að auki hefur markaðshlutdeild Mitsubishi aukist um 60% það sem af er ári 2017 og er Mitsubishi nú komið í hóp 10 mest seldu vörumerkja á Íslandi. HEKLA, sem verið hefur umboðsaðili Mitsubishi um árabil, fagnar sterkari stöðu vörumerkisins og um leið 100 ára afmæli Mitsubishi. Það er því óhætt að segja að Mitsubishi sé á góðu skriði og framundan eru ýmsar skemmtilegar nýjungar sem eiga eftir að gera Mitsubishi að enn athyglisverðara vörumerki.
Mest lesið Dæmdur fyrir brot gegn fimmtán börnum í viðbót Innlent Keilusambandið sakað um djúpstæða spillingu Innlent Vó að æru Margeirs með því að færa hann til í starfi Innlent Láta heiladauða konu ganga áfram með fóstur vegna þungunarrofsbanns Erlent Sýknaðir af ákæru fyrir að brjótast inn í eigið hús Innlent „Nú er verkstjórn tekin við sem gengur í málið“ Innlent Úlfar heldur fullum launum í heilt ár Innlent Óvíst hvar börnin lenda í haust Innlent Óásættanlegar kröfur frá Rússum á stuttum fundi Erlent Tugmilljóna gjaldþrot meðhöndlarans Innlent