Porsche Cayenne Turbo S E-Hybrid verður 671 hestöfl Finnur Thorlacius skrifar 15. mars 2017 09:48 2018 árgerðin af Porsche Cayenne í prófunum.
Porsche ætlar að gæða öflugustu gerð Cayenne jeppans, Turbo S, með rafmótorum og fyrir vikið verður til lang öflugasta framleiðslugerð bílsins. Þessi stóri og þungi bíll verður svo öflugur að hann kemst á 100 km hraða á 3,4 sekúndum. Bíllinn fær 14,1 kW rafhlöður sem duga bílnum til aksturs á rafmagninu eingöngu fyrstu 50 kílómetrana. Brunavélin í bílnum er 4,0 lítra V8, gríðaröflug vél en svo bætist afl rafmótoranna við. Tog aflrásarinnar er 850 Nm og hámarkshraði bílsins 310 km/klst. Það kemur ef til vill ekkert á óvart að öflugasta gerð Cayenne jeppans verði brátt með rafmótorum því Porsche hefur líst því yfir að notkun rafmótora muni aukast mjög í bílum þeirra á næstunni. Þetta eru líka góðar fréttir fyrir áhugasama kaupendur á þessum bíl hér á landi, því með tilkomu rafmótoranna fellur þessi bíll kannski í vörgjaldslausan tollflokk í stað þess að vera í þeim hæsta, með 65% tollaálag. Því gæti farið svo að þessi bílgerð sé allt í einu orðin söluvara aftur hérlendis. Það hefur einnig heyrst úr herbúðum Porsche að næsta kynslóð 911 bílsins verði með rafmótorum til aðstoðar öflugum brunavélunum sem í bílunum eru.
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent