Um er að ræða fyrstu gullplötu sveitarinnar í Bandaríkjunum en Kaleo fékk gullplötu í Kanada síðastliðið sumar fyrir plötuna A/B. Óhætt er að segja að sveitin sé að slá í gegn vestan hafs en Way Down We Go er meðal annars spilað í stiklu fyrir síðustu Wolverine myndina, Logan.
Að neðan má sjá liðsmenn Kaleo með gullplötuna í Kanada í fyrra.
Í umfjöllun Billboard kom fram að enginn nýliði hefði staðið sig jafnvel frá því að Gotye kom laginu Sombody That I Used To Know efst á sama lista árið 2012.
Kaleo hefur komið fram í öllum helstu spjallþáttum Bandaríkjanna undanfarin ár og slógu í gegn hjá Jimmy Kimmel í september þar sem leikarinn og Óskarverðlaunahafinn Tom Hanks var á meðal gesta. Flutti sveitin Way Down We Go og No Good við það tilefni.
Að neðan má sjá Kaleo flytja No Good hjá Jimmy Kimmel.
Myndbandið má sjá hér að neðan.
Ho Hey er líklega frægasta lag The Lumineers sem er frá Denver í Colorado ríki.
Sveitin verður fyrirferðamikil á tónlistarhátíðum á árinu en Kaleo spilar meðal annars á Coachella í Kaliforníu í apríl, Rock Werchter í Belgíu júní og Lollapalooza París í frönsku höfuðborginni í júlí sem markar endinn á sex mánaða ferðalagi strákanna, að minnsta kosti eins og staðan er núna.