Jaguar Land Rover stærsti bílaframleiðandi Bretlands Finnur Thorlacius skrifar 27. janúar 2017 09:37 Jaguar F-Pace jeppinn.
Jaguar Land Rover framleiddi flesta bíla í Bretlandi á síðasta ári, alls 544.401 bíl og fór fram úr Nissan sem vermt hefur efsta sætið í Bretlandi hin síðari ár. Alls nam aukningin milli 2015 og 2016 átta prósentum. Það sem af er þessu ári hefur JLR haldið forskoti sínu sem einkum er drifið áfram af framleiðslu og sölu á nýju jeppunum Jaguar F-PACE og Land Rover Discovery. Um 80% framleiðslu JLR fer á markaði í 136 löndum utan Bretlands. Um 30% allra bíla sem framleiddir voru í Bretlandi 2016 komu úr verksmiðjum Jaguar Land Rover samkvæmt skýrslu Society of Motor Manufacturers and Traders (SMMT). Sambandið getur þess jafnframt að bílaframleiðendur þar í landi hafi sett nýtt met á árinu með framleiðslu á alls 1.727.471 bíl. Þróun framleiðsluaukningar JLR sýnir glögglega þann mikla jákvæða viðsnúning sem fyrirtækið hefur gengið í gegnum frá árinu 2009 þegar aðeins voru framleiddir 158 þúsund bílar í verksmiðjum JLR enda er hér um 240% aukninga að ræða síðan þá. Jaguar Land Rover hefur fjárfest fyrir meira en 12 milljarða punda sl. fimm ár og hefur starfsmannafjöldinn meira en þrefaldast á árabilinu. Nú starfa þar um fjörutíu þúsund manns auk þess sem fyrirtækið skapar 240 þúsund óbein störf einstaklinga sem vinna hjá þjónustuaðilum, söluaðilum og birgjum.Land Rover Discovery Sport.
Mest lesið Vaktin: Útför Davíðs Oddssonar Innlent Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Innlent Kvöddu Davíð hinsta sinni Innlent Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Erlent Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Innlent Brotist inn hjá Alberti Innlent „Ég var skelfingu lostinn“ Innlent Holtavörðuheiði var lokað vegna slyss Innlent Átta ár fyrir gróf brot gegn gestkomandi barni og eiginkonu Innlent Fannst hvergi og var dæmdur í fangelsi Innlent