Sex þúsund bílar
Sýningin var fyrst haldin árið 1974 og voru þá aðeins 40 bílar meðlima Daytona Beach Street Rods til sýnis. Hún fór þó ört stækkandi og árið 1989 var sýningin í fyrsta sinn haldin á hinni risavöxnu Daytona International Speedway kappakstursbraut. Sýningin er líka risavaxin að sniðum og í ár voru yfir 6.000 bílar til sýnis auk annars varnings sem til sýnis var eða sölu, en stór hluti svæðisins var þakinn básum með allt frá gömlum bílútvörpum upp í endursmíðaðar átta gata keppnisvélar til sölu.
Sýningin virðist líka vera vinsæl hjá bílaklúbbum víðsvegar um Bandaríkin og fjölmenntu margir þeirra í hópum og voru með afmörkuð svæði á sýningunni. Sýningin er skemmtileg fyrir margra hluta sakir. Þar ægir saman alls konar gerðum bíla, hvort sem það eru óbreyttir fornbílar eða mikið breyttir götukaggar, ryðgaðir Rat Rods eða gljáfægðir gullvagnar. Bílarnir virðast líka mikið vera á hreyfingu því að margir tóku þá út af sýningarsvæðinu seinnipartinn svo að rúnturinn eftir Atlantic Avenue þar sem hótel Íslendinganna var staðsett, gat verið ansi líflegur á kvöldin.
Leitin að gullvagninum
Eitt af því sem að undirritaðan langaði mikið að sjá á þessari sýningu var eintak af tveggja dyra Chevrolet Impala 1959, en faðir minn átti slíkan bíl á sokkabandsárunum og til eru margar góðar sögur af þeim gullvagni. Á fyrsta degi rakst maður strax á nokkur eintök af Impala 1960, bæði tveggja og fjögurra dyra, með eða án blæju en sá bíll er nokkuð frábrugðin 1959 bílnum og þá sérstaklega ljósin. Á degi tvö fannst svo í horni sýningarinnar eintak af 1959 bíl með augnaljósunum að aftan en þá var það því miður fjögurra dyra týpa.
Það var ekki fyrr en á þriðja degi sem að það hljóp á snærið hjá undirrituðum en í pyttnum á brautinni, næst aðalsvæði sýningarinnar leyndist eintak af slíkum bíl sem meira að segja keppti í Daytona keppninni á árum áður. Það var tveggja dyra bíll af réttri árgerð, með 348 vélinni og svokölluðum "sixpack" blöndungum og Turboglide skiptingu. Þannig skilaði bíllinn 320 hestöflum óbreyttur frá framleiðanda sem þótti nokkuð gott. Þannig má segja nánast öruggt að hver og einn finnur eitthvað við sitt hæfi á þessari skemmtilegu sýningu, því að þessi bíll er ekki mjög algengur.
Afmælisferð í burðarliðnum
Sigurður Lárusson er þegar farinn að skipulegga 20 ára afmælisferðina og býst við að bryddað verði uppá eitthvað skemmtilegt af tilefninu. "Við erum þegar komin með dagsetningar fyrir 2017 en farin verður tveggja vikna ferð 16. - 29. nóvember fyrir þá sem vilja gera gott frí úr ferðinni, enda margt skemmtilegt að skoða í nágrenni Daytona" sagði Sigurður í stuttu viðtali við blaðamann. "Elsti bær Bandaríkjanna, St. Augustine er í aðeins klukkustundar fjarlægð frá Daytona sem og NASA Kennedy Space Center. Einnig er stutt í skemmtigarða Disney, Universal og Seaworld í Orlando.
Fyrir þá sem vilja frekar einblína á sýninguna sjálfa verður vikuferð 21. - 28. nóvember" sagði Sigurður ennfremur. Fleiri bílaferðir eru í burðarliðnum eins og ferð á bílauppboðið í Kissimmee og ferð til Denver í samstarfi við Hafstein Emilsson sem skipuleggur mótorhjólaferðir í samstarfi við Icelandair. Þar er hugmyndin að heimsækja nokkra bíla- og hjólakirkjugarða til að menn geti verslað þar notaða varahluti.




