„Þessi uppskrift er komin frá móður minni heitinni, hún fann hana í einhverju gömlu blaði og ég man eftir að við breyttum henni saman og löguðum að okkar smekk fyrir margt löngu. Síðan þá er þessi ís algerlega ómissandi eftirréttur á aðfangadag,“ segir bloggarinn Berglind Ólafsdóttir. „Þetta er líklega eini rétturinn sem ekki hefur verið skipt út á aðfangadag – enda þykir okkur þessi eftirréttur sá allra, allra besti.“
„Sjálf ber ég hitann og þungann af matseldinni, en nýt dyggrar aðstoðar allra fjölskyldumeðlima,“ segir Berglind spurð út í hver sjái um matseldina á hennar heimili á jólinum. „Svo er tengdasonur minn mikill snillingur í eldhúsinu og spilar hann sífellt stærri og skemmtilegri rullu í jólamatseldinni,“ segir hún.

Fjölskyldan hvetur hana áfram
Berglind hefur bloggað um mat í rúm þrjú ár. „Þá lét ég undan þrýstingi yngri dóttur minnar og byrjaði að blogga. Ég nýt dyggrar aðstoðar og hvatningar frá fjölskyldunni. Bloggið heldur mér á tánum bæði hvað varðar nýjungar í matargerð en fær mig líka til að læra fleiri tæknitrix sem er bónus sem ég kann vel að meta,“ útskýrir Berglind sem deilir hér með lesendum uppskrift að pistasíuísnum umtalaða. „Ísuppskriftin er einföld og á allra færi að gera. Það má þess vegna skella í ísinn á Þorláksmessu og frysta hann þar til á aðfangadagskvöld.“