Mercedes Benz hefur þó tekið lúxusinn í nýjar hæðir með nýjast útspili sínu, sem þeir kalla Marco Polo eftir landkönnuðinum fræga. Gólfið í bílnum er eins og í lúxussnekkju og öll smíðin innanborðs er einkar vönduð og útbúnaðurinn þannig að þeir sem í honum ferðast eru eins og á flottu lúxushóteli.
Í grunninn er Marco Polo sendibíllinn V-Class, systurbíll Vito sendibílsins. Í Marco Polo geta fjórir sofið því bæði er rúm fyrir tvo þegar aftursætin eru lögð niður, en einnig er rúm fyrir tvo í upphækkuninni á bílnum, sem er rafdrifin. Fínasta eldhús er í bílnum, sem og ísskápur.
Framsætin eru snúanleg og í bílum er klósett og miðstöðin er þriggja svæða. Stórir tankar eru fyrir vatn og bíllinn er útbúinn Garmin leiðsögukerfi. Öll sæti er klædd leðri og bakkmyndavél er í bílnum. Velja má milli 163 og 190 hestafla dísilvéla sem í grunninn er sama vélin og eru þær með 380 eða 440 Nm togi.
Verð bílsins er skiljanlega í hærri kantinum, eða um 7,2 milljónir í Bretlandi og er hann nokkru dýrari en Volkswagen California. Þetta verð er þó ef til vill lægra en ef keyptur væri Ford F-150 og sett á hann pallhýsi, sem líklega er algengasta form á húsbílaútfærslu hérlendis.
