Vísir og Job.is í samstarf Tinni Sveinsson 16. nóvember 2016 07:00 Kolbeinn Pálsson, framkvæmdastjóri job.is, og Bjarni Þór Sigurðsson, verkefnastjóri auglýsingadeildar Vísis. Vísir/GVA
Job.is og 365 miðlar hafa ákveðið að ráðast í samstarf til að styrkja stöðu beggja aðila á sviði atvinnuauglýsinga. Frá og með deginum í dag birtast atvinnuauglýsingar Vísis á slóðinni job.visir.is. Tengingar við vefinn eru þær sömu og áður, undir hlekknum Atvinna í haus Vísis. Atvinnuvefur Vísis hefur um árabil verið einn öflugasti atvinnuvefur landsins en þar birtast meðal annars í hverri viku auglýsingar úr Atvinnublaði Fréttablaðsins. Þetta fyrirkomulag helst óbreytt og munu auglýsingar úr Fréttablaðinu nú birtast á nýja atvinnuvefnum, job.visir.is. Það sem auglýsendur græða meðal annars á þessu samstarfi er aðgangur að fullkomnu úrvinnslukerfi job.is. Þar er hægt að eiga samskipti við alla umsækjendur og vinna úr umsóknum með einföldum og skilvirkum hætti. Job.is hefur verið vettvangur atvinnuauglýsinga á netinu frá 1999. Fyrirtækið hefur mikla þekkingu á aðstæðum auglýsenda og atvinnuleitenda og er með þúsundir einstaklinga á skrá í virkri leit að nýju starfi eða öðru starfi.Sjá nánar:Kynningartilboð vegna samstarfsinsYfirlit yfir atvinnuauglýsingarSölufulltrúar fyrir atvinnublað Fréttablaðsins
Mest lesið Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Viðskipti innlent Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Viðskipti innlent Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Viðskipti innlent Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Atvinnulíf Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Viðskipti innlent Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Samstarf Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Viðskipti innlent Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Viðskipti innlent Setja gjald á hraðtískuvörur Viðskipti erlent Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Viðskipti erlent Fleiri fréttir Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Gluggi er ekki bara gluggi Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Sjá meira