Á sama tíma átti sér stað mesta bylting í tækni og hönnun sem sést hefur og glæsilegustu bílar sögunnar litu dagsins ljós. Í Gullöld bílsins er þetta minnisstæða tímabil rifjað upp með yfir 400 myndum af flottustu bílunum og auglýsingunum sem notaðar voru til að kynna þá.
Greint er frá því helsta sem gerðist á þessum árum og stiklað á stóru í sögu framleiðendanna. Gullöld bílsins er 152 bls. að lengd og ómissandi fyrir alla bílaáhugamenn.
