Samstarf Nintendo og Apple var kynnt á kynningu Apple í september. Þá mætti leikjahönnuðurinn Shigeru Miyamoto á svið og tilkynnti leikinn opinberblega.
Um er að ræða verulega stefnubreytingu fyrir fyrirtækið sem hingað til hefur ekki viljað koma nálægt snjalltækjamarkaðinum. Leikurinn Pokemon Go, er sagður hafa snúið forsvarsmönnum Nintendo í átt að þeim markaði.
Eftir útgáfu Pokemon Go hækkuðu hlutabréf Nintendo verulega mikið í verði, áður en í ljós koma að fyrirtækið kom lítið sem ekkert að leiknum.
Hægt verður að sækja leikinn án þess að borga fyrir hann. Hins vegar verður einungis hægt að spila lítinn hluta hans, en það kostar 9,99 dali að opna hann að fullu.