Innlent

Oddviti Pírata í NA segir ólíklegt að flokkurinn nái inn í ríkisstjórn

Sveinn Arnarsson skrifar
Einar Brynjólfsson, oddviti Pírata í norðausturkjördæmi, er ánægður með þær fyrstu tölur sem komnar eru í hús. Segir hann Pírata vera að þrefalda fylgi sitt frá því í síðustu kosningum samkvæmt þessu. Flokkurinn hefur þó dalað mikið á síðustu dögum og er að fá mun minna fylgi upp úr kjörkössunum en flokkurinn mældist með.

„Nei, við hefðum viljað gjarnan viljað annan mann inn hér í norðausturkjörsdæmi og vonandi verður það þannig þegar líður á nóttunum. Þetta er stóra prófið og þessi könnun er sú sem gildir,“ segir Einar.

Píratar boðuðu minnihlutaflokkana á þingi til samtals um myndun ríkisstjórnar fyrir kosningar. Hefur sú ákvörðun þeirra verið nokkuð gagnrýnd. Einar, sem var einn þriggja Pírata sem hafði umboð flokksins til stjórnarmyndunarviðræðna, segir þessar viðræður ekki hafa skaðað flokkinn. „Ég held ekki, og það sést á því að Vinstri græn, sem fór með okkur í þessar viðræður, virðast ná góðri kosningu. Ég held að það hafi ekki verið til að gera ástandið verra fyrir okkurm“ segir Einar.  

Einar játar þó að úr þessu verði mjög erfitt fyrir Pírata að mynda ríkisstjórn og er líklegt úr þessu að flokkurinn verð í stjórnarandstöðu á næsta kjörtímabili. „Það verður ansi erfitt, ég á eftir að leggja þetta saman en mér sýnist það geta orðið erfitt,“ segir Einar um myndun ríkisstjórnar með Pírötum. Hann nefnir að loforð flokksins um að ganga ekki til samstarfs við fyrri ríkisstjórn muni standa.  

„Við stöndum við okkar orð, við munum ekki mynda stjórn með Sjálfstæðisflokk eða Framsóknarflokkog það stendur enn að sjálfsögðu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×