Keppni hafin hjá kokkalandsliðinu í heitum réttum Stefán Árni Pálsson skrifar 25. október 2016 15:45 Flottur hópur.
Kokkalandsliðið hefur hafið keppni í síðari keppnisgrein sinni á Ólympíuleikunum í matreiðslu sem fram fer í Þýskalandi. Í dag er keppt í heitum réttum og hefur sex manna hópur úr Kokkalandsliðinu sex klukkustundir til að matreiða þriggja rétta máltíð fyrir dómara og 110 gesti. Alþjóðlegt lið dómara dæmir í keppninni þar sem meðal annars er tekið mið af bragði, útliti, samsetningu, hráefnisvali og fagmennsku við undirbúning og matargerð. Kokkalandsliðið leggur áherslu á að nota sem mest af hágæða íslensku hráefni í matargerðina sem var sérstaklega flutt á keppnisstað. Matseðillinn er svohljóðandi:ForrétturLéttreykt ýsa með humri, íslensk smágúrka með vatnakarsakremi og grásleppuhrognum. Gljáð svartrót og svartrótarflögur, brúnaður laukur, humar- og kræklingasmjörsósa.AðalrétturNautahryggur og nautamergur með jurtum, hægelduð nautabringa með grilluðu grænkáli og jarðskokkamauki. Kartafla með svörtum hvítlauk og parmesanosti. Ristaðir shiitake sveppir, bóndabaunir og blaðlaukur. Uxahala- og rauðvínssósa.EftirrétturSkyr- og karamellumús, rifsberjahlaup, stökkar hnetur og kakónibbur. Pera með verbenadressingu og pistasíum. Stökk vatnsdeigsbolla með sítrónukremi. Skyrís á súkkulaði og kakóbaunum. Á keppnisstað eru nokkur fullbúin eldhús fyrir landsliðin þar sem keppt er á hverjum degi í fimm daga. Keppt er um gull, silfur og brons verðlaun. Landsliðin frá Kýpur, Tékklandi, Möltu, Hollandi, Nýja Sjálandi, Singapor og Sri Lanka keppa í dag á sama tíma og íslenska landsliðið. Alls eru landslið frá um 40 löndum sem keppa í nokkrum keppnum. Búist er við hátt í 25.000 gestum í keppnishöllina meðan á keppninni stendur. Gestir hafa möguleika á að sjá inn í eldhús landsliðanna og fylgjast með kokkunum að störfum. Í Kokkalandsliðinu eru: Hafliði Halldórsson framkvæmdastjóri liðsins, Þráinn Freyr Vigfússon þjálfari, Bjarni Siguróli Jakobsson fyrirliði, Björn Bragi Bragason forseti KM/framkvæmdastjórn, Steinn Óskar Sigurðsson liðsstjóri, Jóhannes Steinn Jóhannsesson liðsstjóri, Fannar Vernharðsson, Ylfa Helgadóttir, Hafsteinn Ólafsson, Axel Clausen, Garðar Kári Garðarsson, Hrafnkell Sigríðarson, Atli Þór Erlendsson, Sigurður Ágústsson, Georg Arnar Halldórsson og María Shramko.
Matur Mest lesið Alræmt hús á Túngötu til sölu Lífið Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Menning Svandís í ritstjórastól Menning Tim Curry er látinn Bíó og sjónvarp Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Lífið Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lífið „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Lífið Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Lífið Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Lífið Sísí Ey snýr aftur eftir tíu ára fjarveru Tónlist Fleiri fréttir Ríflega níutíu manns mættu í eitt stærsta pálínuboð Íslandssögunnar Fjörutíu básar í garðinum og götumatur frá öllum heimshornum Sjá meira