Renault Megane Sport Tourer kynntur hjá BL Finnur Thorlacius skrifar 27. október 2016 14:05 Renault Megane Sport Tourer.
BL kynnir á laugardaginn milli kl. 12 og 16 nýjan Renault Megane Sport Tourer sem hefur yfir sér sama glæsilega yfirbragðið og fólksbíllinn sem kynntur var fyrr á árinu. Þó fer ekki á milli mála að Sport Tourer sver sig mjög í ætt við stóra bróður sinn, Talisman sem BL kynnti nýlega og Evrópusamtök bílaframleiðenda kaus fallegasta bílinn 2016. Megane Sport Tourer er því einstaklega þægilegur og rúmgóður ferðabíll, ekki síst fyrir fjölskyldur á leið út úr bænum í útilegu eða á skíði því nóg er plássið. Þá eru fágun, mýkt og þægindi í fyrirrúmi í farþegarýminu þar sem hugsað hefur verið fyrir hverju smáatriði. Farþegar í aftursæti hafa nóg pláss og þegar aftursætin eru felld niður veitir Megane Sport Tourer mesta flutningsrýmið í sínum flokki, 580 lítra með sæti uppi og 1695 lítra með sæti niðri og er lengdin þá 2,7 metrar. Meðal staðalbúnaðar í farþegarými má nefna hraðastilli, hæðarstillanlegt rafstýrt veltistýri með aðgerðarhnöppum, tveggja svæða tölvustýrða loftkælingu, R-Link kerfi sem er að hluta til raddstýrt auk þess sem hljómtæki, handfrjáls símabúnaður, akreinavari og fleira stjórnast einnig gegnum R-Link. Þá er bíllinn búinn 7” snertiskjá, leiðsögukerfi með Íslandskorti, vönduðum hljómflutningstækjum með 8 hátölurum, Bluetooth kerfi með tengi fyrir USB og AUX tengi. Megane Stort Tourer er með Halogen aðalljós sem búin eru aðstoð við skiptingu milli háa og lága aðalljósageislans vegna umferðar á móti í myrkri eða þegar ekið er inn í veggöng. Þegar kemur að öðrum öryggisatriðum má nefna stöðugleikastýringu, spólvörn, ABS með hjálparátaki í neyðarhemlun, brekkuaðstoð, dekkjaþrýstingskerfi, fjarlægðarvara bæði að framan og aftan, akreinavara og vegaskiltisnema (Roadsign recognition) svo fátt eitt sé nefnt af ríkulegum staðalbúnaði sem hægt er að kynna sér nánar á renault.is auk fjölbreytts aukabúnaðar sem hægt er að panta með nýjum Megane Stort Tourer. Renault Megane Sport Tourer er framhjóladrifinn, búinn 110 hestafla 1500 dCi Common Rail dísilvél með forþjöppu. Hægt er að velja um 6 gíra beinskiptingu eða 6 gíra EDC sjálfskiptingu og er eyðslan í báðum tilvikum um 3,7 lítrar á hundraði miðað við blandaðan akstur; frá 3,4 lítrum utanbæjar upp í 4,2 innanbæjar. Megane Sport Tourer kostar frá 3.490 þúsundum króna.Laglegt innanrými Renault Megane Sport Tourer.Sportleg sæti.
Mest lesið Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Innlent Níu drepnir í drónaárás á rútu Erlent Segir ríkið bera ábyrgð í máli mannsins á Hverfisgötu Innlent Svalt þokuloft ekki langt undan Innlent Ók fullur á nokkra kyrrstæða bíla Innlent Dæmdur fyrir brot gegn fimmtán börnum í viðbót Innlent Keilusambandið sakað um djúpstæða spillingu Innlent Sýknaðir af ákæru fyrir að brjótast inn í eigið hús Innlent Tugmilljóna gjaldþrot meðhöndlarans Innlent Samþykktu fangaskipti á næstu dögum Erlent