Björgunarsveitin Súlur fá nýjan Mercedes-Benz Sprinter Finnur Thorlacius skrifar 17. október 2016 12:30 Finnbogi Óskar Ómarsson, sölustjóri Mercedes-Benz atvinnubíla hjá Öskju, og Magnús Viðar Arnarson, formaður Björgunarsveitarinnar Súlna á Akureyri, handsala samninginn.
Björgunarsveitir vinna krefjandi starf þar sem hver mínúta getur skipt máli. Þær þurfa oft að athafna sig við erfiðar aðstæður og kljást við óútreiknanlega veðráttu. Því er mikilvægt að björgunarsveitir og aðrir viðbragðsaðilar búi við góðan tækjakost og aki bílum sem bregðast ekki á úrslitastundu. Þegar liðsmenn Björgunarsveitarinnar Súlna á Akureyri voru að horfðu til endurnýjunar á björgunarsveitarbíl þá kom Mercedes-Benz Sprinter strax til greina sem spennandi kostur. Í grunninn er Sprinter einn öflugasti og fjölhæfasti bíll sinnar tegundar. Eftir að sérfræðingar í bílabreytingum hafa farið um hann höndum er hann frábær lausn fyrir björgunarsveitir og aðra viðbragðsaðila. Á ráðstefnunni Björgun 16, sem fram fer í Hörpu nú um helgina, skrifuðu forsvarsmenn Súlna undir samning um kaup á nýrri Mercedes-Benz Sprinter bifreið fyrir sveitina. Að sölunni koma Bílaumboðið Askja og Höldur - bílaleiga Akureyrar. Bíllinn er að gerðinni Sprinter 319 KB millilangur, lágþekja 4x4 og sérlega vel búinn búnaði. Þar má nefna öfluga 190 HP vél sem einnig er sérlega sparneytin og umhverfisvæn og mikið þróað fjórhjóladrif frá Mercedes-Benz. Þá er bíllinn með mjög öflugum breytingapakka frá Oberaigner sem felst meðal annars í læsingum á millikassa, fram- og afturdrifi.
Mest lesið Hæstiréttur Brasilíu hafnar kröfu Sverris Þórs Innlent Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Innlent Grunaður um að fá alls konar búnað frá fyrirtæki fyrir fíkniefnarækt Innlent „Það eru krakkar þarna núna sem eru bara í lífshættu” Innlent Hafa náð stjórn á sinueldi í sumarhúsabyggð Innlent Níu drepnir í drónaárás á rútu Erlent Tugir látnir eftir hvirfilbyl í Bandaríkjunum Erlent Svalt þokuloft ekki langt undan Innlent Ók fullur á nokkra kyrrstæða bíla Innlent Hryðjuverkamálið gæti haft verulega þýðingu Innlent