Innlent

Bjarni segir hugmyndir Framsóknar um Landspítala mjög til tjóns

Ásgeir Erlendsson skrifar
Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að hugmyndir um að reisa nýtt sjúkrahús utan Hringbrautar líkt og Framsóknarflokkurinn leggur til í stefnu sinni séu mjög til tjóns. Slíkar hugmyndir gætu tafið verkefnið um allt að fimmtán ár segir forstjóri spítalans.

Uppbygging nýs Landspítala við Hringbraut hófst formlega fyrir tæpu ári þegar fyrsta skóflustungan var tekin að byggingu sjúkrahótels en framkvæmdirnar eru vel á veg komnar.

Töluverð umræða skapaðist í mars þegar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þáverandi forsætisráðherra, lýsti miklum efasemdum um uppbyggingu spítalans á Hringbrautarsvæðinu, líkti henni við bútasaum og taldi Vífilstaði heppilegri staðsetningu.

Framsóknarflokkurinn kynnti stefnumál sín í gær fyrir komandi kosningar en þar kom fram að flokkurinn leggi áherslu á að nýr spítali rísi á nýjum stað, utan Hringbrautar. Sigurður Ingi Jóhannsson, sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær vilja endurskoða áform um uppbyggingu við Hringbraut án þess að trufla þær framkvæmdir sem þegar eru hafnar.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks, segist vilja klára þá uppbyggingu sem þegar er hafin enda geti hugmyndir um annað tafið verkið.

„Við teljum rétt að klára þau áform sem hafa verið lengi í bígerð og eru núna komin af stað, við Hringbraut. Hugmyndir um að fara eitthvert annað gætu tafið þetta verkefni og það væri mjög til tjóns. Allt það starfsfólk sem þarna er, tel ég að treysti á að við látum ekki verk úr hendi falla og höldum áfram. Og já, ég óttast að það setji öll þessi áform í svolítið óþægilega stöðu og muni tefja fyrir, ef menn ætla að rífa þau upp með rótum,“ segir Bjarni.

Óforsvaranlegt

Páll Matthíasson, forstjóri Landspítala, bendir á að hugmyndir sem þessar feli í sér miklar tafir og bendir á að heilbrigðisráðherra hafi látið gera úttekt á töfum sem yrðu með breyttri staðsetningu.

„Tafirnar yrðu tíu til fimmtán ár. Þá erum við ekki að tala um að meðferðarkjarni og nýbyggingar við Hringbraut rísi 2023, heldur 2033 til 2038. Það er algerlega óforsvaranlegt,“ segir Páll.


Tengdar fréttir

Sigurður Ingi og Sigmundur hafa talað saman

Sigurður Ingi Jóhannsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hafa átt í samskiptum undanfarna daga en andað hefur köldu á milli þeirra eftir flokksþing Framsóknarflokksins í byrjun mánaðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×