Flestir veiðimenn eru líklega sammála því að það er einhvern veginn aldrei hægt að fá nóg af því að horfa á myndir og þættir um veiði og einmitt þess vegna fagna veiðimenn því alltaf þegar nýtt myndefni lítur dagsins ljós.
Gunnar Bender gerði nýja seríu af veiðiþáttum í haust fyrir Stöð 2 en hann hefur verið duglegur síðustu ár að mynd veiðimenn við árbakkann.
Nýja þáttaröðin heitir Árbakkinn og kemur Gunnar víða við í þáttunum. Einhverjir veiðimenn kunna að hafa misst af síðasta þætti sem er sá þriðji í röðinni svo við fengum leyfi til að skella honum hér inn en í þættinum kíkir Gunnar til Bubba Morthens í Laxá í Kjós. Árbakkinn er á dagskrá á Stöð 2 eftir fréttir á fimmtudögum.
Þáttinn má finna á sjónvarpsvef Vísis og í spilaranum hér fyrir neðan.