Mercedes Benz E-Class All Terrain er svar við Audi A6 Allroad Finnur Thorlacius skrifar 4. október 2016 10:31 Mercedes Benz E-Class All Terrain.
Meðal lúxusbíla hefur Audi A6 Allroad átt sviðið hingað til hvað torfæruhæfa langbaka áhrærir, ásamt reyndar Volvo XC70 Cross Country. Nú hefur Mercedes Benz teflt fram útspili í þessum flokki bíla með nýjum E-Class All Terrain. Þar fer upphækkaður E-Class Estate með brettaköntum og hlífðarplötum að framan og aftan. Hann fæst að sjálfsögðu aðeins fjórhjóladrifinn og val er um 19 og 20 tommu felgur. Til að aðgreina All Terrain bílinn frá hefðbundnum E-Class eru ál- og koltrefjafletir áberandi að innan og hann með því gerður grófari í útliti og hæfari í hverskyns jask. Annars er mikið lagt í innréttingu bílsins og fær hann sömu meðferð og Avantgarde útgáfa E-Class. Til að byrja með mun Mercedes Benz kynna þennan bíl með 194 hestafla dísilvélina sem einnig má finna í nýrri kynslóð hefðbundins E-Class og með henni er All Terrain bíllinn um 8 sekúndur í 100 km hraða og fær um 232 km hámarkshraða.
Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Innlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent