Hellcat vélin er 6,2 lítra V8, búin stórum keflablásara og togar 880 Nm. Með svo öfluga vél undir húddinu þarf ýmislegt annað að breytast í Jeep Grand Cherokee og er hann með öflugri bremsur, stærri loftinntök og púst, betra fjöðrunarkerfi og mörgu öðru hefur þurft að breyta.
Öflugasta gerð Jeep Grand Cherokee fram að þessari “Trackhawk” gerð hans var SRT útgáfan sem er með 475 hestafla 6,4 lítra HEMI vél. Með Hellcat vélinni er því stokkið um 232 hestöfl uppávið og munar um minna. Frá herbúðum Jeep hefur heyrst að þessi öflugi jeppi verði kominn á markað eftir tæplega ár.
