Nintendo mun í þessari viku setja í sölu fylgihlutinn Pokémon GO Plus í samstarfi við Pokémon-fyrirtækið. Fylgihluturinn lítur út eins og úr og hægt er að hafa hann á úlnliðnum. Fylgihluturinn tengist snjallsíma með Bluetooth tækni og hægt er að nota hann við Pokémon-leit.
Tækið titrar og kviknar ljós á því þegar spilari gengur fram hjá Pokémon-staðsetningu og leyfir notendum að fanga Pokémona með því að ýta á takka á því.
Margir hafa í sumar orðið varir við fjölda fólks sem gengur með nefið ofan í símanum í leit að Pokémon og hefur jafnvel farið sér að voða í umferðinni.
Með tækinu sem fer í sölu þann 16. september næstkomandi þurfa Pokémon GO spilarar ekki lengur að stara á símaskjá við Pokémon-veiðar. Óljóst er hvert verðið á tækinu verður úti um allan heim, en í Bretlandi verður hægt að kaupa það á rúmar fimm þúsund krónur.
Tilkynnt var í síðustu viku að í næstu uppfærslu af Apple Watch snjallúrinu verði hægt að spila Pokémon Go í gegnum smáforritið.
Pokémon GO úr í bígerð

Tengdar fréttir

Fara í aðgerðir gegn Pokémon Go spilun í umferðinni
Lögreglan í Taívan er langþreytt á Pokémon Go spilurum.

Óæskilegir Pokémon-ar bannaðir víða um heim
Eitthvað hefur Pokéstop-um fækkað, eftir kvartanir um óviðeigandi Pokémon veiðar.

Fimmtungur Íslendinga spilað Pokémon Go
20,7 prósent Íslendinga hafa spilað snjallsímaleikinn ofurvinsæla Pokémon Go á einhverjum tímapunkti.