Vegan lífsstíllinn Guðrún Jóna Stefánsdóttir og Stefán Þór Hjartarson skrifa 24. ágúst 2016 13:00 30 nemendur voru spurðir í hverjum skóla.
Blaðamenn Fréttablaðsins gerðu mjög óformlega og óvísindalega könnun þar sem þeir spurðu nemendur skólanna sem þeir hittu þar fyrir hvort þeir væru vegan og hvort þeim fyndist vegan-lífsstíllinn vera að færast í aukana meðal nemenda skólans. Í öllum skólunum nema einum voru nemendur einróma um að lífsstíllinn væri að verða algengari og flestir könnuðust við einhvern sem er vegan. Margir nemendur sem við ræddum við sögðust vera grænmetisætur.Hvað er vegan? Grænmetisæta er hugtak sem flestir ættu að kannast við og á við um manneskju sem leggur sér ekki til munns hold dýra. Þessar grænmetisætur borða þó jafnvel fisk, egg og mjólkurvörur. Vegan eða veganismi er lífsstíll eða heimspeki sem hafnar því að menn hafi rétt á því að nota dýr sér til framdráttar og að dýrin hafi almennt sama rétt og mannfólkið til að lifa lífinu eftir sínu höfði. Manneskja sem skilgreinir sig vegan notar því engar vörur sem koma frá dýrum eins og snyrtivörur sem hafa verið prófaðar á dýrum, silki, leður og ull auk þess að borða ekki fæðu sem dýr eru notuð til að framleiða – egg, mjólk, hunang og gelatín. Strangar grænmetisætur geta haft sama mataræði og vegan en ekki sömu heimspekina.
Matur Vegan Mest lesið Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Lífið Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Lífið 50+: Að hætta að vera þjónustumiðstöð fullorðinna barna Áskorun „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Lífið Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par Lífið Dýra steikin á matseðlinum er ekki þarna til að seljast Áskorun Stjörnulífið: Laumugifting í helli Lífið Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Lífið ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Lífið Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Lífið