Prinsinn keypti Bugatti Chiron og Bugatti Vision Gran Turismo Finnur Thorlacius skrifar 5. ágúst 2016 09:42 Alls ekki illa bílandi prinsinn af Saudi Arabíu.
Líklega er það fátt sem prinsinn af Saudi Arabíu getur ekki keypt. Hann var til að mynda að festa sér kaup á tveimur Bugatti bílum, þ.e. Chiron og Vision Gran Turismo og borgaði fyrir þá meira en 5 milljónir dollara. Það er svosem ekkert nýtt við það að prinsarnir í olíuríkjunum við Persaflóa kaupi sér nýja og flotta bíla, en það sem telst sérstakt við þessi kaup er að hvorugur bílanna er kominn í almenna sölu. Þeir voru báðir sýningareintök og teljast því báðir fyrstu seldu eintökin af þessum gerðum. Bugatti Chiron er 1.500 hestafla kraftatröll, sem leysir af hólmi Bugatti Veyron. Bugatti hefur ekki hafið sölu þess bíls ennþá og listaverð hans er um 2,5 milljónir dollara. Bugatti Vision Gran Turismo er tilraunabíll sem Bugatti sýndi fyrst á bílasýningunni í Genf í fyrra. Báðir bílarnir eru með 8,0 lítra W16 vél og því ofuröflugir. Hjá Bugatti kom fram að margir kaupendur hefðu falast eftir þessum tveimur bílum en enginn þeirra boðið eins hátt verð í þá og prinsinn.
Mest lesið Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Innlent Vaktin: Útför Davíðs Oddssonar Innlent Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með stúlku um borð Innlent Stunginn með skrúfjárni við Steinhellu Innlent Kvöddu Davíð hinsta sinni Innlent Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Erlent Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Innlent Segist saklaus Innlent Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Erlent Ríkið sýknað vegna dauða ungrar konu í átökum við lögreglu Innlent