Klopp enn í sárum eftir tapið gegn Sevilla Tómas Þór Þórðarson skrifar 20. júlí 2016 10:30 Það var erfitt fyrir Klopp að taka tapinu. vísir/getty
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, segir sig og sína menn enn í sárum eftir tapið gegn Sevilla í úrslitaleik Evrópudeildarinnar í Basel í lok maí. Liverpool spilaði frábærlega í fyrri hálfleik og var 1-0 yfir þökk sé glæsilegu marki Daniels Sturridge. Þá fannst enska liðinu að það ætti að fá eina ef ekki tvær vítaspyrnur. Kevin Gameiro, franskur framherji Sevilla, jafnaði metin á fyrstu sekúndum seinni hálfleiks og spænska liðið bætti svo við tveimur mörkum og vann Evrópudeildina þriðja árið í röð. Með sigrinum komst Sevilla bakdyramegin í Meistaradeildina en sigur í Evrópudeildinni gefur sæti í riðlakeppni hennar. Það var það sem Liverpool ætlaði sér þar sem liðið var aldrei í séns að ná Meistaradeildarsæti í ensku úrvalsdeildinni. „Auðvitað er ég búinn að hugsa mikið um þetta. Það er langt síðan leikurinn kláraðist en mér líður enn þá illa,“ segir Klopp. „Eftir leikinn var ég ekki í stuði til að tala um fyrri hálfleikinn en það er samt augljóst að við spiluðum rosalega vel og áttum að vera með meira forskot.“ „Við áttum að fá vítaspyrnu. Það er ýmislegt sem maður sér svona eftir á. Þetta er ekkert áhugavert því leiknum er lokið en sem manneskja er erfitt að sætta sig við allt sem gerðist,“ segir Jürgen Klopp.
Enski boltinn Evrópudeild UEFA Mest lesið Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Sjá meira